Á föstudag býður Borgarbókasafnið upp á afar áhugaverðan viðburð í samstarfi við þá Gunnar Helgason og Leifur Gunnarson og félaga. Haldnir verða dularfullir og furðulegir jazztónleikar sem eru alveg sérstaklega sniðnir fyrir börn í þremur menningarhúsum í borginni; Gerðubergi, Spönginni og Grófinni.
Enginn veit nákvæmlega hvað mun gerast, en fólk er beðið að hafa varann á því uppákoman gæti innihaldið snefilmagn af ótömdum spuna.
Eitthvað alveg svakalega dulafullt gerðist um daginn! Það kom í ljós að í gegnum eina skrýtna hurð kemur af og til furðulegt fólk með enn furðulegri hljóðfæri? Fá krakkarnir kannski að prófa hljóðfærin? Hefur píanóið skroppið saman? Mun einhver bresta í söng? Þetta kemur allt í ljós þegar töfrahurðin opnast.
Allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir. Ókeypis aðgangur.
Flytjendur: Gunnar Helgason, Leifur Gunnarsson, Svanhildur Lóa Bre, Tómas Jónsson, Rósa Guðrún Sveinsdóttir.
Dagskráin fer fram í:
Gerðubergi kl. 11-11.40
Spönginni kl. 14-14.40
Grófinni kl. 16-16.40