Leikár Þjóðleikhússins hefur farið af stað með látum og sýningum hússins verið afar vel tekið. Sú ótrúlega staða er komin upp að í október eru sýndar hvorki meira né minna en 82 leiksýningar á aðeins 24 sýningardögum.
„Þetta eru rétt tæplega þrjár og hálf sýning á hvern sýningardag,“ segir Atli Þór Albertsson markaðsstjóri leikhússins. „Það man enginn hér eftir öðru eins og við finnum engar sambærilegar tölur frá fyrri tíð í okkar gögnum svo við leyfum okkur að telja að þetta sé mesti fjöldi sýninga sem sýndur hefur verið á jafn skömmum tíma hér í Þjóðleikhúsinu. Það er svo meira og minna uppselt á allar þessar sýningar svo það er sérstaklega ánægjulegt.“
„Við erum að sýna þétt á öllum okkar sviðum auk þess sem við bjóðum elstu bekkjum leikskólanna upp á sýningar af Sögustund í þessari viku. Það er uppselt á Ronju ræningjadóttur út árið. Ég heiti Guðrún sem er aðeins sýnd í október er nær uppseld. Slá í gegn er að klárast, Fly me to the moon, Einar Áskell og svo sýningarnar í Þjóðleikhúskjallaranum. Eins og máltækið segir: Allt er þegar áttatíuogtvennt er.“
Þess má geta að miðasala á sýningar ársins 2019 á Ronju ræningjadóttur hefst á morgun föstudag og því ekkert útlit fyrir að álagið minnki á næstunni.