Iceland Noir, alþjóðlega glæpasagnahátíðin og Storytel raf- og hljóðbókaveitan hafa gert með sér samstarfssamning til næstu þriggja hátíða. Þar með er Storytel orðið verndari og aðalstyrktaraðili Iceland Noir.
Markmið samstarfsins er að efla framgang glæpasögunnar á Íslandi og er það mat samstarfsaðilanna að ávinningurinn sé gagnkvæmur. Storytel mun styrkja hátíðina og leggja þar með öruggan grundvöll undir framkvæmd hennar og Iceland Noir mun leggja sig fram um að kynna notendum Storytel glæpasögur og þá bókmenntamenningu sem þeim fylgja.
Iceland Noir glæpasagnahátíðin er haldin annað hvert ár og sækja hana heim yfir sextíu erlendir höfundar, margir hverjir skærustu stjörnur glæpasagnaheimsins eins og sjá má á vefsíðunni. Hátíðin í ár mun verða haldin í Iðnó dagana 16. og 17. nóvember og stefnir allt í að hún verði sú glæsilegasta til þessa.
Storytel er fyrirtæki sem byggir á frumkvöðlastarfsemi og einbeitir sér að því að verða fyrsta og ákjósanlegasta val hljóðbókaunnenda. Storytel leggur áherslu á að leiða markaðinn þegar kemur að streymi hljóðbóka og leggur metnað í að skila bestu mögulegu lestrarupplifun sem völ er á.
Aðstandendur Iceland Noir eru glæpasagnahöfundarnir Yrsa Sigurðardóttir, Ragnar Jónasson, Quentin Bates, Lilja Sigurðardóttir og Óskar Guðmundsson. Skrifuðu þau undir samstarfssamninginn við Stefán Hjörleifsson og Pál Orra Pétursson í höfuðstöðvum Storytel í vikunni.