Íslenska hljómsveitin Benny Crespo’s Gang sendir í dag frá sér nýtt lag og myndband. Lagið heitir Another Little Storm og er af annarri breiðskífu hljómsveitarinnar, Minor Mistakes, sem kemur út í byrjun nóvember.
Aðdáendur hljómsveitarinnar eru eflaust orðnir þyrstir eftir nýrri plötu en sú fyrsta kom út árið 2007. Hljómsveitina skipa þau Helgi Rúnar Gunnarsson, Bassi Ólafsson, Magnús Öder og Lovísa (Lay Low) en þrátt fyrir þessa löngu bið hafa þau verið mjög virk í íslensku tónlistarlífi og má þar nefna Kiriyama Family, Kött Grá Pjé, Elín Helena og Horrible Youth.
Guðný Rós og Birta Rán gerðu myndbandið við lagið en saman skipa þær framleiðsluteymið Andvari. Lagið er nú líka aðgengilegt á Spotify og öðrum tónlistarveitum.
Á heimasíðu hljómsveitarinnar er hægt að tryggja sér plötuna á vínyl með forsöluafslætti.