Laugardaginn 6. október hljómar nýtt tónlistarævintýri um Maxímús Músíkús.
Nú ferðast Maxi um Ísland og fer upp á fjöll ásamt nýjum vinum sínum, músunum Vivu og Moto. Verkið var pantað af Sinfóníuhljómsveit Íslands og Fílharmóníusveit Los Angeles sem frumflutti það á Reykjavíkur-hátíð sinni í Walt Disney-tónlistarhöllinni.
Boðið verður upp á listasmiðju í Hörpuhorni frá kl. 13 og aftur að tónleikum loknum. Þar geta tónleikagestir á öllum aldri búið til kórónur með Maxa og félögum.
Tónleikarnir eru fyrstu tónleikar áskriftaraðarinnar Litli tónsprotinn.