Björgólfur Thor Björgólfsson og eiginkona hans Kristín Ólafsdóttir voru nýlega á ferð með Beckham hjónunum, David og Victoriu í Frakklandi.
Á Dailymail má sjá myndir af vinahjónunum spóka sig á vínekru í Papauillac nærri Bordeaux. Fleiri þekkt hjón voru með í för, sjónvarpskokkurinn Gordon Ramsay og eiginkona hans Tana, en Ramsay var einmitt nýlega á ferð á Íslandi, og leikkonan Eva Longoria og eiginmaður hennar José Bastón.
Fríið var fótboltakappanum örugglega kærkomið enda hafði hann vikuna áður sloppið undan sekt vegna hraðaksturs. David játaði að hafa ekið Bentley bifreið á á 95 km hraða þar sem 65 km hraði var leyfður en lögfræðingur hans náði að ná málið niðurfellt á þeim forsendum að Beckham hefði verið birt stefna degi of seint. Var þetta í annað sinn á tveimur dögum sem Beckham fékk hraðasekt, og hefur hann mátt sæta mikilli gagnrýni á samfélagsmiðlum vegna málsins. Mikið púður er langt í umfjöllun um sektina í grein Daily Mail.
Beckham kom hingað til lands í lok júní og skellti sér í laxveiði með Björgólfi og fleirum.