Fyrir ári síðan var það Trolls kaka, en í ár í sjö ára afmæli Línu eru það hundar sem eiga hug hennar allan, já eða pabba hennar, Bjarna Benediktssonar fjármála- og efnahagsráðherra sem vippaði upp þessari glæsilegu hundaköku í tilefni dagsins.
„Lína mín með afmælistertuna sína sem hún fékk frá pabba sínum tertu gerða meistaranum!,“ skrifar Baldvin Jónsson, tengdafaðir Bjarna og deilir mynd af tertunni. Kökuna prýða eins og sjá má þrír hundar með matarskál og skilti sem á stendur „Varúð!!! Afmæli“. Svo virðist líka sem einn þeirra hafi gert þarfir sínar á kökuna.Lína virðist líka alsæl með tertuna og vonandi var kakan jafn ljúffeng og hún lítur út fyrir.