Bleika slaufan var afhjúpuð í gær og í áhrifamiklu myndbandi er bent á mikilvægi þess að vinahópar hvetji sínar konur til að mæta í krabbameinsleit og styðji ef kona greinist með krabbamein.
Aukin áhersla á þátttöku kvenna í skimun
„Í Bleiku slaufunni í ár viljum við taka höndum saman við vinnustaði, saumaklúbba og aðra vinahópa sem hafa sýnt sig að vera dýrmætur stuðningur við þá félaga sem veikjast af krabbameini og fá þá til að taka í sameiningu ábyrgð á því að „konurnar þeirra“ nýti tækifæri til reglubundinnar skimunar,“ segir á síðu krabbameinsfélagsins.
Tíma í skimun fyrir brjósta – og leghálskrabbamein má panta hér.
Á heimasíðu Bleiku slaufunnar má finna upplýsingar og ráðgjöf ef að þú hefur greinst með krabbamein, þekkir einhvern sem hefur greinst með krabbamein eða hefur misst ástvin úr krabbameini, auk fleiri upplýsinga.
Leikstjóri og höfundur myndbandsins er Haukur Björgvinsson. Leikkonur eru Anna Hafþórsdóttir, Móheiður Guðmunds, María Thelma og María Dögg Nelson ásamt Nanna Kristín Magnúsdóttir, Margrét Eir, Valdís Arnardóttir og Kolbrún Anna Björnsdóttir.
Bryndís Jakobsdóttir, Jóhann Vignir Vilbergsson og Halldór Gunnar Pálsson sáu um að taka upp frábæra ábreiðu af laginu Dagar og nætur.