Crystal Gibbs er förðunarbloggari og í myndbandinu hér fyrir neðan ákváðu hún og maður hennar, Matt að slá á létta strengi og talar hann yfir myndbandinu meðan Crystal farðar sig af mikilli snilld.
Þegar hlustað er á Matt þá virðist hann, eins og margir karlmenn reyndar, ekki hafa minnstu hugmynd um hvað allar þessar krukkur, burstar, litir og annað gera eða eiga að gera. Sem er kannski sérstakt þegar þetta er eitthvað sem konan hans gerir alla daga og vinnur við.
Hugmyndin er því fyndin, en þegar hlustað er á Matt, er spurning hvort þetta sé yfirhöfuð fyndið. Hann byrjar á að hugmyndin með meikinu sé líklega að „losna við allt sem heitir eðlileg húð,“ og „hér er önnur krukka af kjaftæði sem gerir örugglega nákvæmlega það sama og þessi á undan.“
Hann líkir henni við karakter úr Ace Ventura 2 og „frábært hjá þér Crystal.“
Hér eru nokkrar setningar frá Matt:
Meira af drasli sem við höfum ekki efni á.
Ég finn veskið mitt verða léttara.
Við munum líta út eins og við höfum mætt á framadag í kjarnorkuverksmiðju.
Ætli ég geti notað þetta til að fela undirhökuna á mér?
Gott að þú stoppar til að drekka, viss um að ég heyri í kvöld að þú ert ekki í stuði.
Nefndi ég að við erum að reyna með barn tvö, sé það ekki gerast í kvöld.
Nú hættir þú að líta út fyrir að vera með augnsýkingu og ert eins og fórnarlamb líkamsárásar.
Drullastu til að velja lit, öllum er skítsama.
Ég get örugglega gert þetta betur en þú, lengi lifi rokk og ról.
Núna lagar hún brúnirnar svo hún geti brett þær vel þegar ég segi eitthvað vitlaust við matarborðið eða horfi á rassinn á þjónustustúlkunni.
Myndbandið hefur fengið á sig gagnrýni vegna orða Matt, sérstaklega þar sem hann líkir konu sinni við fórnarlamb líkamsárásar. Eftir gagnrýni sem komið hefur fram á myndbandið segja hjónin að þetta hafi verið gert til að hafa gaman og þetta sé þeirra húmór, ekki annarr