Klukkan 13 í dag mun söngkonan og lagasmiðurinn Una Stef koma fram í beinni útsendingu í DV Tónlist.
Una Stef hefur verið áberandi í íslensku tónlistarlífi undanfarin ár en hún hefur heillað landann með sálar-og djassskotnum lögum sínum líkt og “Mama Funk” og útvarpssmellinum “The One” sem fékk jafnframt tilnefningu sem lag ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum í ár auk þess sem Una sjálf var tilnefnd sem söngkona ársins.
Útsendingin hefst kl. 13:00 á DV.is.
Ítarlegt viðtal við Unu verður birt á vef DV.is laugardaginn 1. september!
https://www.facebook.com/www.dv.is/videos/2188865874723820/