Þeir Mark Archer og Chris Peatvar skipa hljómsveitina Altern 8 sem var eitt stærsta nafn reiftónlistarsenunnar á níunda áratug síðustu, aldar ásamt því að vera þekktir fyrir djarfa og óhefðbundna sviðsframkomu.
Þeir félagar Mark og Chris voru meðal þeirra sem höfðu hvað mest áhrif á reifmenninguna í heimalandi sínu og stóðu fyrir mörgum ólöglegum reifumpartýum vítt og breitt um Bretlandseyjar, stjórnvöldum til ama.
Altern 8 eru í fullu fjöri ennþá og nú er röðin komin að Reykjavík. Það er útgáfufyrirtækið bbbbbbb records sem heldur viðburðinn en eigandi þess er einn fremsti og farsælasti raftónlistarmaður Íslands, BJARKI. Ásamt Altern 8 koma fram þeir BJARKI, Exos og óvæntur leynigestur!
Nánari upplýsingar um viðburðinn má nálgast HÉR – Altern 8 á Facebook