Hin íslensk/ameríska Maria Alva Roff tók engu að síður þessa skemmtilegu mynd fyrir framan veipsjoppuna Drekann á Njálsgötu en hér má sjá fallegt par af asískum ættum taka smá stund milli stríða, – enda ekki á hverjum degi sem fólk hendir sér í brúðarmyndatöku (nema auðvitað þau sem eru haldin brúðarmyndatökuáráttu).
María í rúman áratug haldið úti blogginu Iceland Eyes þar sem hún skoðar og skrifar um sína upplifun af Íslandi. Hún ólst upp í Kaliforníu en hefur búið hér öll sín fullorðinsár og hefur þannig skemmtilega sýn á bæði land og þjóð.
Það sama gildir um borgarlífið en á Instagram síðu Maríu er að finna margar fallegar myndir.