Bæjarhátíðin Heim í Búðardal er haldin annað hvert ár í júlí og er vel sótt af heimamönnum og gestum þeirra, þar á meðal brottfluttum Dalamönnum. Áherslan er lögð á fjölskylduvæna og heimatilbúna dagskrá og viðburði.
„Hátíðin hefst á föstudeginum á kjötsúpurölti, það eru nokkur heimili sem opna dyr sínar fyrir gesti og fólk gengur á milli og myndast kósí stemning,“ segir Bjarnheiður Jóhannsdóttir, ferðamálafulltrúi Dalabyggðar.
Heimamenn eru metnaðarfullir í skreytingum.
„Á laugardeginum byrjum við daginn með „brunch“ sem er í boði fyrir alla, síðan hefst fjölskylduskemmtum og þar er kassabílarallýið og Lotta mætir á svæðið. KM í Búðardal stendur á bak við kassabílarallýið. Þeir eru með verkstæði og það passar því vel. Veitt eru umhverfisverðlaun og verðlaun í ljósmyndasamkeppni. Vestfjarðavíkingurinn fer fram sömu helgi og það fara alltaf 1–2 atriði fram hér í Búðardal. Stjórnin heldur síðan stórdansleik um kvöldið í Dalabúð, sem er hluti af dagskrá þeirra þetta árið í tilefni af 30 ára afmæli hljómsveitarinnar.“
Kassabílarallý í fullum gangi árið 2014.
Skoppa og Skrítla að skemmta börnunum 2014.
Á sunnudeginum verður dagskrá tengd landafundum Eiríks rauða og Leifs heppna, sem er hluti af aldar afmælisdagskrá fullveldis Íslands. Þann dag bjóða líka ferðaþjónustuaðilar í Dölum gestum til sín að upplifa sveitastemningu og afurðir úr héraði.
Vestfjarðavíkingurinn 2014.
Bæjarhátíðin er á Facebook: Bæjarhátíð í Búðardal.