Svo spurðum við líka út í kvöldið í kvöld en Þórunn ætlar að vera með hressandi Júrópartý á Sæta svíninu þar sem allir geta sungið með. Partýið
„Þetta er náttúrulega stórundarleg hegðun þegar fólk finnur sig knúið til að segja svona hluti á internetinu, en ég er samt öllu vön. Athugasemdirnar undir Too Late myndbandinu eru vægast sagt subbulegar margar hverjar, en það er ekki eitthvað sem ég tek inná mig enda ekki mitt að gera það. Það er allskonar fólk sem tjáir sig á internetinu og það er ekki hægt að stjórna því en vonandi áttar það sig á að það sem er skrifað á netið verður þar alltaf. Ég hlæ yfir tilhugsuninni að einhver gúggli afa sinn eftir áratug og sjái svo svona komment,“ segir Þórunn og bætir við að sjálf sé hún með sterkan skráp og láti svona lúða ekkert á sig fá:
„Og þó, ég hætti reyndar snarlega á Snapchat eftir endalaust framboð af óumbeðnum typpamyndum. Einn daginn held ég listasýningu með öllum þessum myndum og kommentum ef menn þroskast ekki uppúr þessu.“
„Ég veit það ekki satt best að segja,“ svarar Þórunn og hlær dátt.
„En ég sæi konur í anda að setja svona komment undir myndbönd af röppurum sem eru oft beriri að ofan í myndböndum; Að maður hefði nú oftar en ekki snert á sér kynfærin um leið og maður væri að horfa á þetta. Nú eða smella í komment undir video af MMA mönnum á brókinni, – að maður myndi nú gera tippið á þeim rautt!“ segir hún og vitnar þar í athugasemd sem einhver tjáningarglaður setti undir áðurnefnt myndband við lagið Too Late.
„Þar segir einn: Djöfull myndi ég gera píkuna á henni rauða. Halló? Þegar ég gaf út þetta video var ég fullorðin kona sem hefur fullt leyfi til að vera sexý án þess að þurfa að heyra hversu oft gaurar hafa runkað sér yfir mér. Sem betur fer eru þessir menn í minnihluta og flestir karlar sem ég þekki eru meira eða minna frábærir. Ég á fjóra bræður sem eru allir fyrirmyndar menn þannig að ég hef ekki misst alla von á karlkyninu.“
Spandex er mikið notað í dans -og sundfatnað og flestir íslendingar eiga spandex galla sem eru mun efnisminni en ég skartaði í myndbandinu fræga. Sundboli og sundbuxur. Börn ganga líka í spandexi og já ég veit það er MJÖG sjokkerandi,“ segir hún og hlær.
„En söngkonan Kate Bush, sem ég dýrka og dái, klæddist þessu mikið og sjálf hef ég alltaf gengið mikið í spandexfatnaði enda æfði ég ballett í níu ár. Ég elska þetta efni.“
„Ég er að fara halda PARTÝ. Eurovison/karaoke partý þar sem ég vona að sem flestir mæti og syngi og hafi gaman saman!“
„Nei guð alls ekki! Ég er ekki tapsár og mér fannst þetta svo fáránlega skemmtileg reynsla þar sem ég fékk tækifæri á að vinna með fagfólki og snillingum frá A – Ö. Ok… auðvitað hefði verið sjúklega gaman að vinna og fara út en ég trúi að það gerist alltaf allt af einhverri ástæðu og þetta verkefni var semsagt ekki fyrir mig. Ekki í þetta sinn að minnsta kosti.
„Hver veit…. Svínið er allavegana í spandexi!“
„Guð ég veit það ekki! Sjáum hvernig fólkið stendur sig annað kvöld!“
„Bara lifi húmorinn og gleðin – og munið, strákar og stelpur, að fara varlega um kommentakerfi internetsins. Þetta verður alltaf til og kannski koma þessar athugasemdir á ferilskrá eða sakaskrá fólks í framtíðinni. Djöfull væri það klikkað! Einhver gagnabanki til með öllu sem maður hefur sagt á netinu! Ha? Lifi gleðin og virðingin!“
ATH: DV er „all in“ á Twitter í kvöld með myllumerkið #söng_ari. Tístin birtast á vefnum hjá okkur í rauntíma. Gaman saman.