Hjá Bjarkarblómum er lögð mikil áhersla á framúrskarandi úrval af ferskum blómum auk fjölbreyttrar gjafavöru þar sem íslensk hönnun skipar stóran sess.
„Sumarlegir blómvendir eru vinsælastir fyrir mæðradaginn, það er enginn einn litur sem er alls ráðandi. Bleiku blómin hafa oft staðið upp úr, en ekki algilt samt,“ segir Bergþóra Björg Karlsdóttir, eigandi Bjarkarblóma sem staðsett er við nýja innganginn í Smáralind og í Þorlákshöfn.
„Það er algengt að feður komi með börn sín alveg frá 1–2 ára aldri að velja blóm handa mömmu. Dagurinn er orðinn stærri í blómum en konudagurinn og mömmur eru á öllum aldri. Það eiga flestir mömmu, en það eiga ekki allir konu eða kærustu.“
Bergþóra byrjaði í blómabransanum í mars 2010 hjá fyrri eiganda Bjarkarblóma. „Það leiddi til þess að ég fór í garðyrkjuskólann og í verknám hjá henni og ég útskrifaðist sem blómaskreytir 2014. Þá flutti ég til Þorlákshafnar og opnaði búðina þar, síðan í fyrra ákvað fyrri eigandi að selja fyrirtækið og ég ákvað að kaupa minn gamla vinnustað.“
Gjafir sem henta vel með handa mömmu
Margir velja að láta litla gjöf fylgja með blómvendinum og hjá Bjarkarblómum fæst ýmis gjafavara sem hentar vel með: til dæmis hjörtu sem á stendur „mamma er besta mamma í heimi,“ bollar, súkkulaði og púðar.
„Hjá okkur fást púðar frá J B art sem eru mjög vinsælir með kvenkynsstikkorðum, eins og einstök, falleg, frábær, æðisleg, kærleiksrík og svo framvegis sem segir allt sem segja þarf um mömmu manns. En blómin eru samt númer 1, 2 og 3 á mæðradeginum.“
Bjarkarblóm er með heimasíðuna bjarkarblom.is og er einnig á Facebook, Instagram og Snapchat. Síminn er 578-5075 og netfangið bjarkarblom@bjarkarblom.is. „Á Snapchat má fylgjast með blómum, tilboðum og eins þegar ég er að útbúa blómaskreytingar.“
Opnunartími:
Mánudaga–miðvikudaga kl. 10–19
Fimmtudaga kl. 10–21
Föstudaga kl. 10–19
Laugardaga kl. 10–18
Sunnudaga kl. 12–18
Bjarkarblóm í Þorlákshöfn er opin frá kl. 13–17 miðviku-, fimmtu- og föstudaga.