Fastir pennar

Björn Jón skrifar: Hin eilífa þekkingarleit

Mynd
Konungurinn af Thule (fr. Le roi de Thulé). Verk belgíska málarans Pierre Jean van der Ouderaa frá árinu 1896.
Mynd

Þess var minnst í liðinni viku að 180 ár eru frá því að Menntaskólinn í Reykjavík tók til starfa. Fyrsti rektor skólans var þjóðskáldið Sveinbjörn Egilsson en raunar vill svo til að á þriðjudaginn kemur verða liðin 200 ár frá fæðingu sonar Sveinbjarnar, Benedikts Gröndal, hins fjölhæfa lista- og menntamanns. 

Tíminn er skrýtið fyrirbæri. Sjálfum þykir mér hreint ekki svo langt síðan við MR-ingar fögnuðum 150 ára afmælinu vorið 1996. Ég var þá að ljúka 3. bekk. Fugit irreparabile tempus, líkt og rómverska gullaldarskáldið Virgill orðaði það, tíminn flýgur og kemur aldrei aftur. Gröndal var vel að merkja kennari við Lærða skólann og drátthagur með afbrigðum. Í tilefni þess að hálf önnur öld var liðin frá fæðingu Benedikts Gröndal árið 1976 gáfu Örn & Örlygur út bókina Dýraríki Íslands með þúsundum litmynda af dýrum sem Benedikt hafði teiknað. Alþingi hafði veitt styrk til útgáfu þess verks heilli öld fyrr en ekki á færi neinna hérlendis að gefa bókina út á þeirri tíð. Vonandi er eitthvert andlegt lífsmark með Ríkisútvarpinu og öðrum menningarstofnunum sem gera þá sögu Gröndals og verkum hans skil með verðugum hætti á tveggja alda afmælinu.

Fegurðin á að ala manninn upp

Á áttræðisafmæli Benedikts 1906 fögnuðu stúdentar honum með blysför og hann var gerður að fyrsta heiðursfélaga Stúdentafélags Reykjavíkur (en tveir hafa síðar hlotið þá nafnbót, Kristján Albertsson rithöfundur 1985 og Ólafur Egilsson sendiherra 2026). Benedikt lést árið eftir og lét hann eftir sig endurminningar, Dægradvöl, sem er með kunnustu sjálfsævisögum hérlendum. Þar skín í gegn dálæti hans á fornmenningunni sem hann drakk í sig í æsku. Hann fær sér sæti úti í guðsgrænni náttúrunni á Álftanesi og les Hómerskviður á frummálinu — rétt eins og Werther ungi í sögu Goethes. 

Vart þarf að fjölyrða um aðdáun Goethes og Schillers á fornmenningunni. Báðir höfðu þeir bundið vonir við frönsku stjórnarbyltinguna en fengu snemma ýmigust á þeim ófögnuði öllum: fyrst þyrfti að ala borgarana upp og gera úr þeim menn áður en þeim yrði fengin í hendur frjálslynd stjórnarskrá. Og það var fegurðin sem átti að ala manninn upp; gera hann siðferðilega þroskaðan. Vegurinn til siðgæðis lægi um land fegurðarinnar. Þeir voru báðir náttúrudýrkendur líkt og Gröndal og vinátta þeirra hófst reyndar eftir að þeir höfðu orðið samferða heim af fundi í náttúruvísindafélaginu í Jena 1794 — aðeins tveimur árum eftir að frönsku konungshjónin voru gerð höfðinu styttri.

Faust Goethes kemst að því undir lok verksins að það er hvorki yfirnáttúruleg þekking né leitin að yfirnáttúrulegum yfirburðum sem veitir jarðlífinu gildi heldur starf og strit innan jarðneskra takmarkana. Manngildið er í því fólgið að starfa meðan dagur endist og lífsgleðin sprettur af óþrjótandi iðju og keppni að takmarki sem þó er ekki hægt að öðlast hér á jörðu.

Land utan seilingar

Ég missti af afmæli míns gamla skóla í vikunni sem leið — var önnum kafinn við að sinna norrænum verslunarskólanemum og kennurum þeirra sem hér voru í heimsókn. Þegar ég var að undirbúa mig fyrir ferð með hópnum á Þingvelli rifjaði ég upp slitróttar sagnir Pýþeasar af Thule en það er einmitt í Georgicu áðurnefnds Virgils sem talað er um Ultima Thule. Ultima er kvenkynsmynd orðsins ultimus sem merkir fjarlægastur. Í nútímagelísku er Ísland kallað Tìle sem vitaskuld er Thule Pýþeasar sem átti að liggja í sex dægra siglingu norður frá Bretlandi. Við vitum þó ekki hvort Thule Pýþeasar sé Ísland en um langan aldur var Thule eins konar óskilgreint fyrirbæri á endimörkum veraldar uns Adam frá Brimum kvað upp úr með það um 1070 að Ísland og Thule væru eitt og hið sama.

Eitt hið þekktari kvæða Goethes er Der König in Thule og nokkrar undursamlegar ljóðlínur úr því kvæði nýtti hann í Faust. Thule varð raunverulegt staðarheiti þegar danski landkönnuðurinn Knud Rasmussen nefndi norðlæga stöð þessu nafni á Grænlandi árið 1910. Þar er starfrækt varnarstöð Bandaríkjamanna en nafni hennar var breytt í Pituffik fyrir þremur árum. Og nú eiga að tvær bandarískar stöðvar að bætast við á næstu árum. Önnur í Narsarsuaq, rétt við Brattahlíð, og hin hér langt fyrir norðan, í Meistaravík, á landssvæði sem kennt er við Kristján X konung.

Kjarni vestrænnar menningar

Þegar ég var á ferðalagi um Grænland í fyrrasumar hitti ég fyrir Dana nokkurn í Jakobshöfn eða Ilulissat sem aðstoðað hafði hinn heimskunna svissneska jöklafræðinginn Konrad Steffen við rannsóknir sínar á Grænlandsjökli. Steffen andaðist í ágústmánuði 2020 er hann féll í sprungu á jöklinum. Ferðafélagi minn íslenskur, þaulreyndur jöklafari, vann í sumar sem leið að því að hreinsa upp leifarnar af búðum Svisslendinganna uppi á jöklinum.

En allt um það. Mér þótti athyglisvert hvernig Daninn sagði frá andláti hins nafntogaða vísindamanns: Engin leið var bjarga líki Steffens en Daninn kvaðst sjá fegurð í hinum vofveiflega dauðdaga — Steffen hafði horfið í jökulinn sem hann unni svo mjög. Þegar ég rifjaði þetta upp á dögunum fannst mér ég skilja þetta betur; einn fremsti vísindamaður heims á sínu sviði lét lífið við hina eilífu þekkingarleit á hættuslóðum að loknu mögnuðu ævistarfi.

Ég velti því fyrir mér hvort við förum ekki þarna nærri um kjarna vestrænnar menningar; þá æðstu skyldu mannsins hér á jörðu er að keppa sífellt upp á við því líklega er eilíf leit að æðri sannindum hið eina sem frelsað getur manninn úr fjötrum.