Kínverjar seilast nú til áhrifa á Íslandi og bjóða gull og græna skóga undir hinu hljómfagra heiti „Belti og braut.“ Verkefnið nær til fjölda landa í Asíu, Afríku og Evrópu og vilja Kínverjar styrkja innviði af ýmsum toga, svo sem vegagerð, hafnargerð, flugvallagerð og lagnir ljósleiðara. Opinbera skýringin er sú að opna leiðir austur til Kína en ekki er allt sem sýnist.
Um margra ára skeið hafa Kínverjar seilst til áhrifa í Afríkuríkjum. Mokað þangað peningum til innviðauppbyggingar og sett upp fyrirtæki. Eru þeir þá í góðri stöðu til að fá viðskipti og aðgang að miklum, og að stórum hluta ónýttum, náttúruauðlindum álfunnar. Líkt og í fangelsunum, ef einhver gefur þér gjöf, þá vill hann eiga inni greiða.