Í vikunni greindi Kjarninn frá því að Facebook hefði tekið út auglýsingunni frá hópnum Orkan okkar, sem snýr að þriðja orkupakkanum. Fylgjandi pakkans tilkynnti auglýsinguna og Facebook úrskurðaði að um væri að ræða rangfærslur, eða óviðeigandi áróður.
Gott er að vita að Mark Zuckerberg og hans fólk sé með allan sannleikann um þriðja orkupakkann og áhrif hans á Íslandi á hreinu og geti tekið svo afdráttarlausar ákvarðanir sem handhafi óhrekjanlegrar vitneskju.
Er nú lag fyrir ríkisstjórn Íslands að fela samfélagsmiðlinum önnur mál til úrskurðar og jafnvel að fá hann til að semja fyrir okkur nýja stjórnarskrá.