fbpx
Föstudagur 22.nóvember 2024

Helg og óhelg svæði

Ritstjórn DV
Laugardaginn 23. febrúar 2019 20:30

Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lilja Dögg Alfreðsdóttir menntamálaráðherra brá á það ráð að skyndifriðlýsa það svæði Víkurgarðs sem átti að fara undir hótel. Var það gert eftir langvarandi þrýsting frá borgurum sem annt er um minjavernd og helgi garðsins.

Víkurgarðurinn er ekki eini forni kirkjugarðurinn í Reykjavík. Hinn stóri Laugarneskirkjugarður var friðlýstur árið 1930 og Breiðholtskirkjugarður árið 1981. Í Engey, Viðey, Hólmi við Suðurlandsveg og Gufunesi, norðan við núverandi grafreit, er einnig að finna fornar grafir. Þá er forn kirkjugarður á Seltjarnarnesi, við Seltjörn. Ekki er vitað nákvæmlega hversu langt allir þessir garðar náðu og helgin því á huldu.

Vaknar þá sú spurning hvort ekki þurfi að senda út her af fornleifafræðingum til að komast til botns í þessu aðkallandi máli; hvaða þúfa teljist helg og hver ekki?

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 14 klukkutímum

„Að fá að vera fulltrúi lands og þjóðar er mikill heiður sem ég ber af þakklæti og auðmýkt“

„Að fá að vera fulltrúi lands og þjóðar er mikill heiður sem ég ber af þakklæti og auðmýkt“
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Sagður hafa átt samtal við Amorim um að koma til United

Sagður hafa átt samtal við Amorim um að koma til United
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Ásgeir Frank fær mikla ábyrgð í Grafarvogi

Ásgeir Frank fær mikla ábyrgð í Grafarvogi
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Breiðablik að kaupa Óla Val heim úr atvinnumennsku

Breiðablik að kaupa Óla Val heim úr atvinnumennsku