Skipunartími Más Guðmundssonar seðlabankastjóra rennur út á þessu ári og líta margir hagfræðingar hýru auga til embættisins. Ólíklegt þykir að núverandi stjórn ráði pólitískan bankastjóra. Slíkt yrði einfaldlega of eldfimt.
Einn af þeim sem hafa minnt á sig í umræðunni er Ásgeir Jónsson, dósent við Háskóla Íslands. Hefur hann meðal annars talað fyrir því að Seðlabankinn og Fjármálaeftirlitið yrðu sameinuð að nýju.
Skipun Ásgeirs gæti verið góð lending fyrir stjórnarflokkana. Hann þykir hneigjast til hægri en hefur samt tengingar til vinstri þar sem faðir hans, Jón Bjarnason, var ráðherra Vinstri grænna. Þar að auki er Ásgeir lítt umdeildur.