fbpx
Þriðjudagur 16.júlí 2024

Áfengisfrumvarpið sýndarmennska

Ritstjórn DV
Laugardaginn 22. september 2018 18:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sjö þingmenn hafa nú lagt fram frumvarp um að sala á áfengi verði leyfð í sérverslunum einkaaðila. Þorsteinn Víglundsson, fyrrverandi félagsmálaráðherra, stendur fyrir frumvarpinu ásamt sex öðrum þingmönnum Viðreisnar, Pírata og Sjálfstæðisflokks.

Þetta er nú í fimmta sinn sem frumvarpið er lagt fram og hljóta kjósendur að fara taka slíkum áætlunum með fyrirvara. Að minnsta kosti hvað Viðreisn og Sjálfstæðisflokk varðar.

Þessir tveir flokkar mynduðu hryggjarstykkið í hinni skammlífu stjórn sem sat árið 2017 en með þeim dansaði Björt framtíð sem einnig vildi vín í búðir. Ef full alvara væri á bak við þetta þá hefði þetta raungerst fyrir ári.

Staðreyndin er sú að mikill meirihluti þjóðarinnar er á móti því að áfengi verði selt í búðum og því ekki til vinsælda að láta reyna á þetta fyrir alvöru. Ætla mætti að frumvarpið sé aðeins sett fram til að flagga meintu frjálslyndi í tilraun til að laða að yngri kjósendur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Var Spánverjinn stálheppinn í gær? – Sjáðu myndirnar umtöluðu

Var Spánverjinn stálheppinn í gær? – Sjáðu myndirnar umtöluðu
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Meistararnir vilja fá eina af hetjum EM

Meistararnir vilja fá eina af hetjum EM
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Óttast að byrja án lykilmanns eftir slagsmálin á dögunum

Óttast að byrja án lykilmanns eftir slagsmálin á dögunum
Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Pálmi Þór lést af slysförum á Spáni

Pálmi Þór lést af slysförum á Spáni