Athygli vekur að þeir sem taka til máls eru dómarar, lögmenn og svo Helga Þórisdóttir, forstjóri Persónuverndar. Þá ávarpar Sigríður sjálf samkomuna. Engir ritstjórar, blaðamenn eða aðrir talsmenn upplýsingafrelsis taka til máls.
Ætla má að umræðan verði ansi einsleit á málþinginu og að í raun verði hún nokkurs konar halelúja-samkoma til stuðnings frumvarpinu og ráðherra.