Íslensku flugfélögin glíma við töluverðan mótvind sem kunnugt er, enda alþjóðleg samkeppni harðvítug og eldsneytisverð á uppleið.
Á sama tíma má segja að meðvindur sé þeim hagfelldur í umræðunni hér heima, því flestir landsmenn átta sig á mikilvægi þess fyrir litla einangraða eyju að búa við öflugar flugsamgöngur og ferðamannastraum til landsins.
Því má öruggt telja að landsmenn óski þess heitt og innilega að stjórnendur Icelandair og WOW nái markmiðum sínum og komi flugfélögunum fyrir vind.