fbpx
Laugardagur 31.ágúst 2024

Fuck it

Ritstjórn Eyjunnar
Miðvikudaginn 29. maí 2019 10:56

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Orðið á götunni er að ekki hafi allir verið sáttir við niðurstöðuna í stjórnarkjöri Skeljungs í vikunni, þegar Jón Ásgeir Jóhannesson, fyrrverandi útrásarvíkingur var kjörinn varaformaður stjórnar.

Uppstillingarnefnd Skeljungs hafði fyrir fundinn mælt með Jóni, en um leið var ekki mælt með að Kjartan Örn Sigurðsson yrði áfram í stjórninni og því tæki Jón Ásgeir sæti hans, sem úr varð.

Vísað var til reynslu Jóns Ásgeirs í rekstri smásölu, sem talin var til yfirburða og þá var talið honum til tekna að vera vel giftur:

„Báðir fram­bjóðend­ur, Jón Ásgeir og Kjart­an Örn, koma vel út úr mati nefnd­ar­inn­ar hvað þá lyk­il­færni varðar. Til­nefn­ing­ar­nefnd tel­ur þó að ekki verði litið fram­hjá yf­ir­burðarreynslu Jóns Ásgeirs af fjöl­breytt­um smá­sölu­rekstri. Í þessu sam­bandi tek­ur nefnd­in einnig und­ir það sem fram kom á fund­um með hlut­höf­um að það sé góður kost­ur fyr­ir Skelj­ung hf. að a.m.k. einn stjórn­ar­maður eigi sjálf­ur, eða gegn­um tengda aðila, hlut í fé­lag­inu til að tryggja virkt eign­ar­hald. Svo er ekki í nú­ver­andi stjórn. Það telst því Jóni Ásgeiri einnig til tekna.“

segir í umsögn nefndarinnar, en eiginkona Jóns Ásgeirs, Ingibjörg Pálmadóttir, á hlut í félaginu.

Þess skal getið að Kjartan Örn sat sjálfur í uppstillingarnefndinni, en kom ekki að mati framboðanna né gerð tillögunnar. Kjartan er framkvæmdastjóri SRX ehf. og framkvæmdastjóri Verslanagreingar ehf.  en var áður forstjóri Egilsson hf. og framkvæmdastjóri Strax í Evrópu.

Kjartan Örn, sem sagður er keppnismaður mikill, tók ósigrinum ekki alveg þegjandi og hljóðalaust, en orðið á götunni er að hann hafi sagt eitthvað á þessa leið á samfélagsmiðlum þegar úrslitin voru ljós:

„I was replaced on the board of directors at Skeljungur today for Jón Ásgeir Jóhannesson. But fuck it, I´m Cool Calm and Collected and Thankful for the opportunity and Experience which I´ll use as more fuel on the fire.“

Lausleg þýðing yfir á ástkæra ylhýra:

„Mér var skipt út í stjórn Skeljungs í dag fyrir Jón Ásgeir Jóhannesson. En fari það í rass og rófu, ég er slakur, rólegur og yfirvegaður og þakklátur fyrir tækifærið og reynsluna sem ég mun nota til að kynda bálið.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 7 klukkutímum

Skógar með harðgerðum plöntum leynast í risastórum holum í Kína

Skógar með harðgerðum plöntum leynast í risastórum holum í Kína
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Slot róar stuðningsmenn Liverpool – ,,Ég treysti mínu starfsfólki“

Slot róar stuðningsmenn Liverpool – ,,Ég treysti mínu starfsfólki“
EyjanFastir pennar
Fyrir 9 klukkutímum

Sigmundur Ernir skrifar: Kúvendingar á hægrivængnum

Sigmundur Ernir skrifar: Kúvendingar á hægrivængnum
Fókus
Fyrir 9 klukkutímum

Atvinnuboxarinn Valgerður Guðsteinsdóttir keppir í sögulegum bardaga á vegum UFC

Atvinnuboxarinn Valgerður Guðsteinsdóttir keppir í sögulegum bardaga á vegum UFC
Eyjan
Fyrir 11 klukkutímum

Hvaða fólk verður í framboði fyrir Samfylkinguna? – Útlit fyrir stórsigur og marga nýja þingmenn

Hvaða fólk verður í framboði fyrir Samfylkinguna? – Útlit fyrir stórsigur og marga nýja þingmenn
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Saka var forvitinn í gær – ,,Hvern erum við að kaupa?“

Saka var forvitinn í gær – ,,Hvern erum við að kaupa?“