fbpx
Þriðjudagur 15.apríl 2025

Ekki alveg dagsatt

Ritstjórn Eyjunnar
Þriðjudaginn 8. janúar 2019 12:25

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Orðið á götunni er að braggamálinu sé hvergi nærri lokið. Þar sé ýmislegt sem enn eigi eftir að kryfja til mergjar. Skýrsla innri endurskoðunar um braggamálið er sögð aðeins toppurinn á þeim ísjaka sem óvönduð stjórnsýsla Reykjavíkurborgar þykir vera þegar kemur að framúrkeyrslu verkefna, en í sex verkefnum borgarinnar hefur framúrkeyrslan numið rúmlega 1,3 milljarði.

Líklega hefur meirihlutinn fagnað því að skýrsla innri endurskoðunar hafi komið út rétt fyrir jól og vonast eftir að málið gleymdist hægt og hægt. Hinsvegar virðist því öfugt farið, fjölmiðlum, borgarfulltrúum og almenningi gafst rúmur tími til að bæta skýrslunni á jólalestrarlistann hjá sér og rýna í þau ámælisverðu vinnubrögð sem höfð voru uppi í braggamálinu.

Borgarstjóri ætlar að sitja í þriggja manna nefnd sem hefur það verkefni að rýna í niðurstöður skýrslu innri endurskoðunar um braggamálið. Mörgum finnst það öfugsnúinn vinnubrögð, þar sem ekki þarf að lesa lengi á milli línanna í skýrslu innri endurskoðunar til að glöggva sig á ábyrgð borgarstjóra. Því hefur trúverðugleiki Dags í fyrirhuguðum störfum sínum fyrir nefndina verið dreginn í efa, enda hefur hann verið staðinn að því að segja fjölmiðlum ósatt vegna braggamálsins.

Þá má slá því föstu að viðbrögð vinstri manna hefðu síst verið minni ef málinu væri snúið við, að borgarstjóri Sjálfstæðisflokksins hygðist sitja í nefnd sem færi með eftirköst spillingarmáls sem hann sjálfur bæri mikla ábyrgð á, sem æðsti stjórnandi borgarinnar. Eitthvað myndi nú heyrast þá.

Í skýrslu IE er tekið fram að litið hafi verið framhjá niðurstöðum svartrar skýrslu innri endurskoðunar frá árinu 2015 um starfssemi skrifstofu eigna- og atvinnuþróunar Reykjavíkurborgar, sem Hrólfur Jónsson stýrði og fenginn var til starfsins af Degi B. Eggertssyni. Hrólfur, sem þykir mesta ábyrgð bera í braggamálinu, hætti störfum í lok mars í fyrra, rétt áður en braggamálið komst í hámæli.

Borgarstjóri viðurkennir að hafa verið í miklum samskiptum við Hrólf, en kannast ekkert við að hafa vitað neitt misjafnt um braggamálið. Innri endurskoðun rannsakaði tölvupósta Hrólfs til borgarstjóra. Ekki var leitað í tölvupósthólfi Dags um samskipti hans við Hrólf hinsvegar, sem verður að teljast eilítið furðulegt.

En væntanlega verður það fyrsta verk borgarstjóra í nefndinni, til að auka gagnsæi, fagleg vinnubrögð og trúverðuleika sinn, að láta óháðan aðila rannsaka tölvupósthólf sitt, svo hægt verði að taka af allan vafa um að hann hafi ekkert vitað af braggamálinu.

Því aðeins eru orð borgarstjóra og Hrólfs höfð fyrir því að Dagur hefði enga vitneskju haft um málið.

Þegar DV spurði Dag hvort tölvupóstar hans hefðu verið skoðaðir, játaði Dagur því. Það stangast hinsvegar á við skýrsluna auk þess sem Eyjan fékk það staðfest hjá innri endurskoðun að svo hefði ekki verið.

Það liggur því fyrir að Dagur sagði fjölmiðlum ekki alveg dagsatt um braggamálið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Unglingahópur réðst á mann til að geta birt ofbeldismyndband á samfélagsmiðlum

Unglingahópur réðst á mann til að geta birt ofbeldismyndband á samfélagsmiðlum
433
Fyrir 11 klukkutímum

Semenyo hetja kvöldsins

Semenyo hetja kvöldsins
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Sjáðu myndbandið – Hegðun Ancelotti eftir rauða spjald Mbappe vekur mikla athygli

Sjáðu myndbandið – Hegðun Ancelotti eftir rauða spjald Mbappe vekur mikla athygli
Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Segir að verði að vera hægt að ræða vinnubrögð RÚV – „Þið eruð öll bara í ruglinu ef þið gagnrýnið okkur“

Segir að verði að vera hægt að ræða vinnubrögð RÚV – „Þið eruð öll bara í ruglinu ef þið gagnrýnið okkur“
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Besta deild kvenna hefst annað kvöld – Nágrannaslagur á Kópavogsvelli

Besta deild kvenna hefst annað kvöld – Nágrannaslagur á Kópavogsvelli
Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

„Sonur minn er ekki bara to do listi sem þarf að tikka í til að hægt sé að segja að lögum og reglum hafi verið fylgt“

„Sonur minn er ekki bara to do listi sem þarf að tikka í til að hægt sé að segja að lögum og reglum hafi verið fylgt“
Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Hélt konu í heljargreipum heimilisofbeldis

Hélt konu í heljargreipum heimilisofbeldis
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Danski reynsluboltinn staðfestur á Akureyri

Danski reynsluboltinn staðfestur á Akureyri
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Smella þessum háa verðmiða á manninn sem er orðaður við Arsenal og United

Smella þessum háa verðmiða á manninn sem er orðaður við Arsenal og United