fbpx
Laugardagur 31.ágúst 2024

Óskiljanlegt heilbrigðiskerfi

Orðið
Föstudaginn 24. ágúst 2018 16:45

Ísólfur Gylfi Pálmason

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Orðið á götunni er að ótti og jafnvel hrein andúð Vinstri grænna á einkarekstri í heilbrigðiskerfinu virðist lítil takmörk eiga. Norðurlöndin, með alla sína sósíaldemókratísku stjórnmálaflokka, hafa farið þá leið í auknum mæli að notast við blandað kerfi opinbers reksturs og einkareksturs í heilbrigðismálum með frábærum árangri.

Hér á Íslandi er frábær áratugareynsla af þessu, til dæmis með rekstri lækna í Domus Medica og Læknasetrinu. Margar frábærar heilsugæslur eru einkareknar án þess almenningur finni fyrir því með nokkrum hætti.

En þegar kemur að Klíníkinni, einkarekinni heilbrigðisþjónustu í Ármúla, er eins og allt sé stopp, kannski vegna tengslanna við Ásdísi Höllu Bragadóttur, áhrifakonu í Sjálfstæðisflokknum og fyrrverandi bæjarstjóra í Garðabæ.

Ísólfur Gylfi Pálmason, bæjarstjóri á Suðurlandi og fyrrverandi þingmaður Framsóknarflokksins, kynntist ruglinu í heilbrigðiskerfinu af eigin raun á dögunum er hann varð að leita til Svíþjóðar eftir læknisaðgerð, þar sem biðin á Íslandi eftir sambærilegri aðgerð á Landspítalanum var orðin allt of löng.

„Þá er búið að skera mig upp við festarmeini, en meinið hefur hrjáð mig um talsverðan tíma. Það er ótrúlega erfitt og flókið að komast í skoðun – hvað þá aðgerð. Fjöldi fólks á Íslandi er úr leik þar sem það bíður aðgerðar,“ skrifar Ísólfur Gylfi á Facebook-síðu sína.

Og hann heldur áfram:

„Ég var svo ljónheppinn að leita m.a. til Hjálmars Þorsteinssonar bæklunarlæknis hjá Klínikkinni í Reykjavík en hann stýrði um tíma Capio Moment sjúkrahúsi í Svíþjóð en þar var aðgerðin framkvæmd. Sérstök EB reglugerð er milli Sjúkratrygginga Íslands og margra sjúkrahúsa í Evrópu. Sjúkratryggingar Íslands og heilbrigðisráðherra neita að gera samninga við Klínikkina í Ármúla en í staðinn er greitt fyrir sams konar aðgerð í Svíþjóð og er aðgerðin þar þrisvar sinnum kostnaðarsamari en hjá Klínikkinni. Þetta er ótrúlegt og með öllu óskiljanlegt.“

Hver getur ekki tekið undir orð þingmannsins fyrrverandi? Og hvers vegna láta menn Svandísi Svavarsdóttur, heilbrigðisráðherra Vinstri grænna, komast upp með það rugl að borga Svíum þrisvar sinnum meira fyrir það sem aðgerð kostar í Ármúlanum, bara til þess að geta sniðgengið Ásdísi Höllu?

Hvaða skynsemi er í því?

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 7 klukkutímum

Skógar með harðgerðum plöntum leynast í risastórum holum í Kína

Skógar með harðgerðum plöntum leynast í risastórum holum í Kína
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Slot róar stuðningsmenn Liverpool – ,,Ég treysti mínu starfsfólki“

Slot róar stuðningsmenn Liverpool – ,,Ég treysti mínu starfsfólki“
EyjanFastir pennar
Fyrir 9 klukkutímum

Sigmundur Ernir skrifar: Kúvendingar á hægrivængnum

Sigmundur Ernir skrifar: Kúvendingar á hægrivængnum
Fókus
Fyrir 9 klukkutímum

Atvinnuboxarinn Valgerður Guðsteinsdóttir keppir í sögulegum bardaga á vegum UFC

Atvinnuboxarinn Valgerður Guðsteinsdóttir keppir í sögulegum bardaga á vegum UFC
Eyjan
Fyrir 10 klukkutímum

Hvaða fólk verður í framboði fyrir Samfylkinguna? – Útlit fyrir stórsigur og marga nýja þingmenn

Hvaða fólk verður í framboði fyrir Samfylkinguna? – Útlit fyrir stórsigur og marga nýja þingmenn
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Saka var forvitinn í gær – ,,Hvern erum við að kaupa?“

Saka var forvitinn í gær – ,,Hvern erum við að kaupa?“