Orðið á götunni er að það borgi sig ekki að vera of ákafur í viðskiptum, því það geti endað með leiðinda veseni. Þessu fékk Róbert Wessman að kynnast á dögunum, er hann ásamt Árna Harðarsyni og Magnúsi Jaroslav Magnússyni voru dæmdir til að greiða fyrrum viðskiptafélaga sínum 640 milljónir í skaðabætur, auk vaxta, fyrir viðskiptafléttu sem Hæstiréttur dæmdi ólöglega. Þetta eru sennilega hæstu skaðabætur sem nokkur hefur þurft að greiða hér á landi, ekki síst þegar vextirnir eru reiknaðir með, en þá fer upphæðin að nálgast 1.2 milljarða!
Viðskiptafléttan ólöglega fólst í grófum dráttum í því að Róbert og félagar hans seldu félag sitt á undirverði, eða um 1.5 milljónir, þó virði þess hafi verið metið um 1.7 milljarður. Ágætis afsláttur það.
Orðið á götunni er, að þar sem Hæstiréttur sagði Róbert og félaga hafa sýnt af sér ólögmæta og saknema háttsemi, sé embætti saksóknara með málið á sínu borði og því líkur á að meira vesen sé í vændum.