fbpx
Laugardagur 27.júlí 2024

VeikindaDagur

Ritstjórn Eyjunnar
Fimmtudaginn 11. október 2018 12:23

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Orðið á götunni er að það sé farið að hitna verulega undir Degi B. Eggertssyni borgarstjóra. Braggablúsinn svokallaði hefur reitt borgarbúa til reiði, þar sem daglega upplýsist um nýtt hneyksli tengt bragganum, sem á endanum gæti endað sem lögreglumál, þegar bókhaldið verður skoðað.

Eyþór Arnalds hefur kallað eftir afsögn Dags, þar sem hann sé jú æðsti yfirmaður og framkvæmdastjóri borgarinnar. Hann hafi átt að sjá hvernig málum var háttað, útboðsreglur hafi verið brotnar og Dagur hafi fengið öll gögn í hendurnar til að meta málið sjálfur. Gildir þá einu hvort Dagur hafi lesið gögnin eða ekki, hvort tveggja teljist afglöp í starfi.

Hitinn undir borgarstjórastólnum virðist hafa haft beinar afleiðingar á heilsu borgarstjóra, sem mætti ekki í Kastljósið í gær sökum flensu. Dagur þótti hrókur alls fagnaðar á þriðjudagskvöldið, í teitinu án Yoko Ono eftir að að Friðarsúlan var tendruð, en líklega hefur slegið að honum í Viðey.

Í hans stað mætti Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, oddviti Viðreisnar, sem virtist átta sig á því með hverri mínútunni sem leið, að mögulega hefði hún betur afþakkað Kastljósboðið sjálf, svona í ljósi þess að hún virtist álíka gagnleg og dúnmelur í svörum sínum. Henni er vissulega vorkunn því hún vissi ekki af málinu fyrr en í ágúst og getur sök hennar því varla talist mikil í málinu. Sem hlýtur að teljast hentugt ef hún væri borgarstjóri.

Og talandi um Þórdísi Lóu sem borgarstjóra…

Orðið á götunni, réttara sagt innan úr ráðhúsinu, er að Dagur hyggist draga sig í hlé sem borgarstjóri og fara í veikindaleyfi. Sem kunnugt er greindist hann með fylgigigt fyrr á þessu ári, sem er sjaldgæfur gigtarsjúkdómur sem leggst á slímhúðina í líkamanum. Álagið sem fylgir slíkum veikindum getur verið mikið og ekki bætir úr skák álagið sem fylgir því að þurfa að svara fyrir afglöp embættismanna sinna í óþægilegum málum.

Orðið á götunni er að Þórdís Lóa muni taka við af Degi og því hafi Kastljósið verið einskonar forsmekkur af því sem koma skal.

Vonandi fást þó einhver svör frá Degi sem fyrst, svona þegar hann hefur braggast af flensuni.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Heimir búinn að finna sér aðstoðarmann sem margir kannast við

Heimir búinn að finna sér aðstoðarmann sem margir kannast við
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 klukkutímum

Óttar Guðmundsson skrifar: Rafmagnsbíll, nei takk

Óttar Guðmundsson skrifar: Rafmagnsbíll, nei takk
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

United tapar líklega baráttunni við PSG

United tapar líklega baráttunni við PSG
Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Eyja með gömlu hervirki til sölu – Fimmtán draugar búa þar

Eyja með gömlu hervirki til sölu – Fimmtán draugar búa þar
Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Hildur lætur Einar heyra það fyrir kaffiboðið – „Virðast ekki skilja að fyrir okkur hljómar þetta eins og hótun“

Hildur lætur Einar heyra það fyrir kaffiboðið – „Virðast ekki skilja að fyrir okkur hljómar þetta eins og hótun“
Pressan
Fyrir 18 klukkutímum

Ættleiddi son fyrrverandi konu eiginmannsins – Móðirin lést með hörmulegum hætti

Ættleiddi son fyrrverandi konu eiginmannsins – Móðirin lést með hörmulegum hætti
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Flýgur til London í kvöld og heldur svo til Bandaríkjanna

Flýgur til London í kvöld og heldur svo til Bandaríkjanna
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Mátti ekki koma til landsins í fjögur ár en endaði í gæsluvarðhaldi

Mátti ekki koma til landsins í fjögur ár en endaði í gæsluvarðhaldi