Orðið á götunni er að Liv Bergþórsdóttir, sem nýlega hætti störfum sem forstjóri Nova, verði næsti forstjóri WOW air.
Liv hefur einnig verið stjórnarformaður WOW air og er því öllum hnútum kunnug.
Skuldabréfaútboði WOW lýkur væntanlega nú um helgina þar sem búist er við að félagið nái inn 5,5 milljörðum króna, en upphaflega var gert ráð fyrir 6-12 milljörðum króna, samkvæmt kynningu Pareto á útboðinu.
Orðið á götunni hefur lengi verið að fjárfestirinn Björgólfur Thor Björgólfsson, sem hagnaðist um 20 milljarða í vikunni vegna sölu CCP, hafi fjárfest töluvert í WOW á liðnum mánuðum og hafi jafnvel ætlað sér að taka félagið yfir.
Björgólfur er vel kunnugur bæði Skúla Mogensen og Liv Bergþórsdóttur, en Novator, fjárfestingarfélag Björgólfs, stofnaði Nova árið 2006. Það seldi síðan símfyrirtækið í hendur Pt Capital Advisors árið 2016.
Það ku vera krafa frá fjárfestum og Björgólfi sjálfum, að Skúli Mogensen stígi til hliðar sem forstjóri og Liv taki við. Er það sagt muna bæta ímyndina og traust til fyrirtækisins, en vöxtur Nova með Liv í fararbroddi þótti aðdáunarverður og hún sé því rétta manneskjan til að fara með WOW í hæstu hæðir.