Orðið á götunni er að verkalýðshreyfingin leiki á reiðiskjálfi eftir tíðindi dagsins þar sem Ragnar Þór Ingólfsson bar sigur úr býtum í kosningu til formanns Verslunarmannafélags Reykjavíkur.
Sitjandi formaður, Ólafía B. Rafnsdóttir, beið afgerandi ósigur og segir nýr formaður í fjölmiðlum framboð sitt hafa verið vantraustsyfirlýsingu á forystu ASÍ. Ekki ríki traust í samfélaginu til að byggja upp norrænt salek-samningamódel á vinnumarkaði og hann muni leggjast gegn slíkri vinnu.
Alls hlaut Ragnar Þór 63% greiddra atkvæða, en samtals voru greidd 5.706 atkvæði af 33.383 sem eru á kjörskrá. Verður kosningaþátttakan að teljast ótrúlega lítil í svo stóru og öflugu stéttarfélagi.
Orðið á götunni er að nýr formaður VR skeri upp herör gegn öllu því kerfi sem er á bak við verkalýðshreyfinguna og lífeyrissjóðina hér á landi. Svo dæmi sé tekið vill hann banna verðtryggingu, nokkuð sem verkalýðsforkólfar hafa hingað til ekki viljað heyra á minnst. Já, eða allir nema Vilhjálmur Birgisson á Akranesi.
Þá vekur ekki síður athygli að hann vill nota iðgjöld lífeyrissjóðsfélaga í margskonar samfélagslega uppbyggingu, „í stað þess að þurfa að græða á öllu og vera í miklu áhættubraski,“ eins og hann orðar það í samtali við Fréttavef Morgunblaðsins.
VR er stærsta verkalýðsfélag landsins. Það hefur mikil áhrif um allt samfélagið, innan ASÍ og gegnum lífeyrissjóði. Orðið á götunni er að nú þegar Ragnar Þór og félagar hafa tekið yfir VR sé komið að ASÍ. Þar er fyrir forsetinn Gylfi Arnbjörnsson og sá er efstur á lista byltingarsinna yfir þá sem þarf að velta úr sessi.
Ballið er því rétt að byrja.