Fréttablaðið skýrir frá þessu. „Þetta lítur mjög vel út og það er að fækka mjög mikið á atvinnuleysisskrá. Við eigum von á góðum tölum um mánaðamótin. Betri en við höfðum spáð fyrir um,“ er haft eftir Birnu Guðmundsdóttur, sérfræðingi hjá Vinnumálastofnun.
Fram kemur að meðal þess sem hefur haft mest áhrif séu átakið Hefjum störf en rúmlega 900 manns hafa nýtt sér það í maí og einnig hefur fjölgun ferðamanna haft jákvæð áhrif.
Í upphafi maí voru um 20.000 manns á atvinnuleysisskrá en eru nú nálægt 18.000.
Fréttablaðið hefur eftir Birnu að spáin fyrir sumarið sé góð en helsti óvissuþátturinn að hennar mati er hlutabótaleiðin en hún rennur út um mánaðamótin. „Það er óljóst hvort það fólk verði allt ráðið í fullt starf hjá fyrirtækjunum eða einhverjir lendi tímabundið á atvinnuleysisskrá,“ sagði hún.
Í nýrri þjóðhagsspá, sem Íslandsbanki kynnti í vikunni, er spáð 9 prósenta atvinnuleysi á árinu og að hlutfallið verði komið niður í það sem það var fyrir faraldurinn árið 2023. Birna sagðist telja þessa spá frekar svartsýna og að atvinnuleysi muni dragast hraðar saman. „Ég á von á því að hlutfallið verði orðið svipað og fyrir faraldurinn á næsta ári. Atvinnulífið er að breytast og verða bæði fjölbreyttara og sveigjanlegra. Fólk er ekki lengur alltaf í sömu störfunum og árstíðasveiflurnar eru að grynnast,“ er haft eftir henni.