Það er þekkt umfjöllunarefni sagnfræðinga og vinsæll samkvæmisleikur að spyrja spurningarinnar: Hvað ef ... þetta og hitt hefði gerst eða ekki gerst?
Hér eru nokkur dæmi um þetta.
Hvað ef Kennedy hefði frestað ferð sinni til Dallas þann 22. Nóvember 1963?
Hvað ef Paul McCartney hefði ekki hitt John Lennon þann 6. Júlí 1957?
Hvað ef Þjóðverjar hefðu verið á undan Bretum að hernema Ísland árið 1940?
Hvað væri að gerast núna á Íslandi ef JÁ hefði fengið 6351 fleiri atkvæði og unnið í þjóðaratkvæðagreiðslunni í ágúst síðastliðnum?
Ég spurði gervigreindina og nokkra aðila í viðskiptalífinu á Íslandi þessarar spurningar.
Hér koma nokkrar tilgátur og hugmyndir
Gervigreindin segir að efnahagsleg áhrif sigurs JÁ sinna væru þegar komin fram.
Hún segir að verðbólguvæntingar og ávöxtunarkrafa skuldabréfa væru þegar lækkaðar og að fyrirtæki væru þegar farin að undirbúa mögulega evruaðild landsins. Bent er á að áhugi erlendra fjárfesta væri þegar kominn fram.
Fullyrt er að samningaviðræður um aðild væru komnar af stað. Auk þess má benda á að Ísland hefur þegar innleitt stóran hluta regluverks ESB í gegnum EES.
Samningafólk Íslands væri þegar búið að átta sig á því að samningsstaðan er afar góð enda vill Evrópusambandið fá Ísland inn sem fullgildan aðila. Landfræðileg staða landsins okkar stækkar áhrifasvæði ESB um 800 þúsund ferkílómetra á mjög mikilvægu svæði.
Aðild Íslands myndi þannig styrkja stöðu ESB á norðurslóðum og aðild Íslands gæti sýnt umheiminum að ESB getur tekið við vel undirbúnum ríkjum án langvarandi aðlögunar.
Ljóst er orðið að Ísland getur strax orðið hluti af gjaldmiðlasamstarfi ESB – ERM II sem er eins konar biðsalur fyrir inngöngu í evrusvæðið.
Ísland gæti líklega tekið upp evru innan tveggja ára. Þetta hefur þegar haft þau áhrif að lánshæfismat Íslands hefur batnað. Traust til landsins okkar hefur þegar aukist eftir að JÁið varð ofan á.
Erlendir fjárfestar væru strax byrjaðir að sýna aukinn áhuga á landinu okkar vegna þess fyrirsjáanleika og trausts sem fylgir sterkum alþjóðlegum gjaldmiðli. Síðustu ár hefur erlend fjárfesting á Íslandi einskorðast við gagnaver. Fjárfestar hafa einfaldlega keypti áhugaverðustu fyrirtækin eins og Marel, Össur, Mílu, Actavis og Kerecis. Sum þeirra hafa verið flutt úr landi.
Fyrirtækin í landinu sem eru ekki þegar með evrur í sínum uppgjörum og lántökum, væru þegar farin að undirbúa lántökur í evrum á allt að 70% lægri vöxtum en þau hafa aðgang að í dag. Þannig munu öll fyrirtæki landsins standa jafnfætis í lánamálum en í dag njóta um 280 fyrirtæki þeirra forréttinda að geta tekið lán sín í evrum meðan hin 10 þúsund fyrirækin þurfa að taka lán í krónum á ofurvöxtum hennar.
Sjávarútvegsfyrirtækin og fiskeldið væru þegar byrjuð að búa sig undir niðurfellingu á tollum á fullunnum fiski sem er í dag í EES samstarfinu. Þessi breyting leiðir til þess að fullvinnsla fiskafurða mun færast aftur heim til Íslands en útflutningur óunnins fisks hefur stóraukist vegna þessara tolla.
Landbúnaðurinn væri þegar byrjaður aðlögun að niðurfellingu verndartolla á matvöru. Enn meiri stækkun mjólkurbúa væri hafin og afurðastöðvar væru að hagræða til að mæta aukinni erlendri samkeppni.
Hagræðing og sameining fyrirtækja í kjúklinga- eggja- og svínakjötsframleiðslu væri þegar hafin eins og gerðist þegar verndartollar á grænmeti voru felldir niður en grænmetisiðnaðurinn fór einmitt að blómstra eftir að tollar voru felldir niður fyrir nokkrum árum.
Gera má ráð fyrir að matarverð á þessum vörum muni lækka um allt að 50% með frjálsum innflutningi og hagræðingu hjá íslensku landbúnaðarfyrirtækjunum.
Ferðaiðnaðurinn getur loksins horft fram á tíma fyrirsjáanleika og stöðugleika í gengi á næstu árum. Hægt verður að gefa út verðlista um ferðir og gistingu fram í tímann en slíkt er illmögulegt í dag þar sem enginn veit hvert gengi krónunnar verður að ári liðnu.
Í dag býr ferðaþjónustan við of hátt gengi krónunnar sem hefur valdið tugmilljarða tjóni í greininni á þessu ári. Það mun breytast við upptöku evru á ásættanlegu gengi krónunnar.
Ríkissjóður gæti byrjað undirbúning að því að breyta lánum sínum úr krónum í evrur og lækkun vaxtakostnaðar um tugi milljarða króna á ári. Í dag er slíkt ómögulegt þar sem lántökur ríkisins í evrum í stað krónu myndu þýða offramboð á erlendum gjaldeyri með tilheyrandi gengisstyrkingu og veikingu útflutningsgreina.
Seðlabankinn gæti þegar hafið minnkun gjaldeyrisforðans sem kostar um 100 milljónir króna á dag. Engin þörf verður fyrir slíkan forða eftir upptöku evru.
Starfsfólk bankans gæti þegar byrjað að leita sér að annarri vinnu enda mun starfsfólki hans fækka úr um 300 niður í um 50 manns eftir að Seðlabanki Evrópu yfirtekur stjórn peningamála landsins. Seðlabankahúsið gæti verið komið á sölu.
Verslunarkeðjan Krónan gæti þegar tryggt sér nýtt vörumerki: EVRAN.
Almenningur og heimilin í landinu hafa þegar fengið smjörþefinn að aukinni samkeppni tryggingafyrirtækja og banka sem þegar eru byrjuð að búa sig undir væntanlega erlenda samkeppni. Þau bjóða nú þegar lægri tryggingargjöld og húsnæðisvexti.
Matvara gæti þegar verið farin að lækka í verði enda sjá verslanakeðjurnar og heildsalarnir að lágvörukeðjurnar Lidl og ALDI eru þegar byrjaðar að leita að lóðum undir sína starfsemi.
Gjaldmiðillinn okkar hefur haldið þessum fyrirtækjum frá landinu þar sem gengissveiflur krónunnar gera það einfaldlega of áhættusamt að stunda starfsemi á Íslandi.
Við sögðum NEI við þessu meðan aðrir mótmæla
Nauðsynjavörur til heimilisins eru í dag um 75% dýrari á Íslandi en að meðatali í ESB löndum samkvæmt nýlegri könnun.
Samt fara milljónir íbúa þessara landa í mótmælagöngur vegna hás framfærslukostnaðar meðan meirihluti Íslendinga segir NEI við því að skoða hvort aðild að ESB gæti hugsanlega lækkað vöruverð og vexti í landinu. Meirihlutinn sagði sem sagt JÁ við háu matvælaverði og vöxtum á Íslandi!
Eru háir vextir náttúrulögmál á Íslandi?
Með hliðsjón af þeim okurvöxtum sem krónan krefst af almenningi þá var það athyglisvert að lesa grein bankastjóra Íslandsbanka í Morgunblaðinu í vikunni þar sem hann réttlætti hina háu vexti á Íslandi með þeim rökum að þeir færu „að stórum hluta frá heimilunum til heimilanna.“
Hann bætti við að „yngri kynslóðir greiða vexti sem styðja meðal annars við lífeyri þeirra eldri.“ Hann réttlætir síðan ofurhagnað bankanna með því að segja að þeir séu um 80% í eigu almennings!
Bankastjórinn hefur augljóslega ekki átt samtal við ungu kynslóðina sem getur ekki komið sér inn á húsnæðismarkaðinn vegna okurvaxta, hás vaxtamunar og ofurhagnaðar bankanna.
Ræðum Evrópu áfram
Í þjóðaratkvæðagreiðslunni í ágúst kusu um 105 þúsund manns JÁ, þar af um 30 þúsund á landsbyggðinni.
JÁ ið þurfti ekki nema 6351 atkvæði til viðbótar til að sigra.
Niðurstaðan í ágúst stöðvar viðræður í bili en útilokar ekki ESB aðild síðar. Það sem mun ráða mestu er afstaða næstu kynslóðar kjósenda sem munu ekki sætta sig við allt að þrefalda húsnæðisvexti og allt að 75% hærra verð á nauðsynjavörum en í Evrópu.
Mótmæli unga fólksins mun koma fram í auknu fylgi við ESB aðild Íslands.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifaði pistil á visir.is í gær þar sem hún sagði meðal annars:
„Niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar um áframhaldandi aðildarviðræður við Evrópusambandið var okkur vonbrigði. Við virðum niðurstöðuna. En hugsjónin um opið, frjálslynt og alþjóðasinnað Ísland hverfur ekki við það. Rúmlega 105 þúsund Íslendingar vildu halda þeim möguleika opnum og sú framtíðarsýn á áfram fullt erindi.“
Því skulum við halda áfram að ræða kosti aðildar Íslands að ESB.