Eyjan

Halldór Guðmundsson: Gullöld íslenskra bókmennta er núna

Mynd
Halldór Guðmundsson
Halldór Guðmundsson. Mynd DV/KSJ

Það er gjarnan talað um tvær gullaldir íslenskra bókmennta. Sú fyrri hafi verið frásagnarbókmenntirnar á síðmiðöldum og sú síðari á 19. öld þegar rómantísku skáldin ortu ljóð og rímuðu allt. En ekki má gleyma skáldsagnagerðinni á seinni hluta 20. aldarinnar þar sem Nóbelsskáldið okkar var í broddi fylkingar. Svo má færa rök fyrir því að við séum einmitt núna að upplifa gullöld íslenskra bókmennta. Halldór Guðmundsson, höfundur Líf í bókum, íslenskrar bókmenntasögu, er gestur Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Eyjunnar.

Hægt er að hlusta á brot úr þættinum hér:

Þegar þú horfir yfir bókmenntasöguna. Er eitthvað eitt sem stendur upp úr?

„Já, þetta er góð spurning. Mér finnst stundum allir sem eru að leika sér svona með þetta, þeir, það er tendens til þess að tala um tvöfalda gullöld. Það er gullöldin á síðmiðöldum, 13. öldin, miklu frásagnarbókmenntir okkar þá. Og svo tóku menn náttúrlega, til dæmis rómantísku skáldin og Fjölnismenn, eftir á það sjáum við þá sem nýja gullöld. En það er fyrst og fremst gullöld ljóðlistarinnar og 19. öldin hjá okkur, hún er bara ljóðlistaröld. Vá, það er allt rímað, meira að segja leiðarar í blöðum.

En, en mér finnst síðan svona skáldsagnagerðin á seinni hluta 20. aldar vera önnur gullöld og merkilegar bókmenntir og frábærar og auðvitað stendur minn maður, Halldór Laxness, þarna upp úr. En það er margir aðrir að skrifa, sérstaklega á seinni hluta aldarinnar, sem við munum lengi lesa.“

Já, já og það er nú, það er nú, það eru nú vangaveltur, íslensk nöfn, kannski aðallega íslenskt nafn, er jafnan nefnt yfir mögulega Nóbelsverðlaunahafa.

„Já, já. Þar hafa til dæmis bæði Jón Kalman Stefánsson og Sjón komið við sögu. Og kannski fleiri úr meiri fjarlægð, ég skal ekki segja um það. Þú veist, þetta er nú dálítið hérna mikið …“

Og Gyrðir er nefndur líka.

„Já, já, og réttilega finnst mér. En þetta er mikið getgátuverk að átta sig á því hvernig sænska akademían hugsar. Hún lenti náttúrlega í miklum ógöngum fyrir nokkrum árum þannig að þetta hefur kannski ekki alveg sömu virðingu og það hafði.“

Nei, það var náttúrlega dálítið drastískt, þetta hneykslismál þarna.

„Þau voru mjög drastísk og sköpuðu svona tímabundið upplausnarástand en það er auðvitað margt mjög fínt sem þeir hafa verið að draga fram í seinni tíð. Hún var stórkostleg sem kom hingað núna í haust, Olga Tokarczuk frá Póllandi, og það eru fleiri höfundar og svo eru náttúrlega Íslendingar núna búnir að eignast annan Nóbelsverðlaunahafa.“

Jú, jú, svona ættleiddan.

„Ja, íslenskur ríkisborgari. Við förum ekkert í kringum það neitt.“

Nei, nei, það er ekkert hægt að deila um það.

„Þó að auðvitað hennar svið eru klassískar fornbókmenntir sem fræðimanns og hennar uppruni er í kanadískum bókmenntum að sjálfsögðu, en þetta er náttúrlega gaman fyrir okkur að sjá þetta og mér finnst það benda á að minnsta kosti einn trend sem ég reyni að segja þarna undir lok bókar að sé nýr og merkilegur hljómur og það eru innflytjendabókmenntir. Við hugsum ekki oft út í það en innflytjendur núna eru hérna um það bil jafn margir og Íslendingar voru í upphafi 20. aldar og ég held að Pólverjar til dæmis séu alveg 6-7% af þjóðinni.

Þetta fólk, sumt sem flutti hingað eða sumt sem er önnur kynslóðin, er farið að skrifa um Ísland og, eigum við að segja, finna sér samastað á Íslandi með orðum. Sumir skrifa á íslensku, sumir á ensku, sumir á pólsku. En þetta er samt sem áður þessi Íslandslýsing sem hefur tveggja heima sýn og er þess vegna stórmerkileg og þarna eigum við eftir að sjá mörg mjög athyglisverð verk, er ég alveg sannfærður.“

Já, bara rétt í lokin þá langar mig aðeins til þess að velta upp einu. Við vorum að tala um Nóbelsverðlaunin áðan. Það náttúrlega eru ekki mörg ár síðan vísnasöngvari fékk Nóbelinn í bókmenntum. Er hugtakið bókmenntir að breytast eða er Bob Dylan bara ósköp hefðbundið ljóðskáld?

„Ja, Bob Dylan er ljóðskáld. Það er í engum blöðum um það að fletta og ég skildi nú ekki alveg þessar miklu hneykslisraddir í kringum það. En auðvitað er hugsanlegt að akademían hafi aðeins viljað poppa sig upp og eitthvað slíkt en við eigum ekki að vera að þrengja þetta hugtak að óþörfu. Bókmenntir geta bara birst okkur svo víða og í alls kyns textum og samhengi og það skiptir til dæmis máli fyrir þróun bókmenntanna og ég skrifa um það hér, útgáfa orðabóka þar sem er verið að ydda verkfærið ef svo má segja. Og þetta að sjá bókmenntir í víðu samhengi er held ég lykilatriði til skilnings á þeim.“

Ef það er eitt sem ég tek úr þessu spjalli okkar þá er það að við erum í sjálfu sér að upplifa ákveðna gullöld í íslenskum bókmenntum.

„Það held ég að sé rétt hjá þér.“

Hægt er að hlusta á hlaðvarpið í heild sinni hér:

 

 

Einnig er hægt að hlusta á Spotify.