Senn líður að því að bókun 35 komi frá utanríkismálanefnd til annarrar umræðu í þingsal. Um er að ræða mikið réttindamál fyrir íslenskan almenning og fyrirtækin í landinu jafnframt því sem rétt innleiðing bókunar 35 er ákveðinn hornsteinn EES-samningsins, þar sem mikilvægt er í þágu fjórfrelsisins og innri markaðarins í Evrópu að sama regluverk sé í gildi alls staðar á markaðnum.
Orðið á götunni er að afar fróðlegt verði að sjá hvaða afstöðu Sjálfstæðismenn munu taka varðandi afgreiðslu málsins en þeir áttu frumkvæði að því að flytja það á síðasta kjörtímabili og ákafir talsmenn þess að málið yrði samþykkt en náðu því ekki í gegn vegna andstöðu samstarfsflokksins VG.
Í þessu sambandi er fróðlegt að rifja upp orðaskipti Bjarna Benediktssonar, þáverandi utanríkisráðherra, og Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns Miðflokksins, 13. febrúar 2024, í umræðum um skýrslu sem Bjarni lagði fram í þinginu um EES-samninginn og bókun 35.
Sigmundur gagnrýndi málflutning Bjarna og sagði hann hljóma nákvæmlega eins og rökstuðning Viðreisnar í málinu. „En hér kemur bara heilt plagg með Viðreisnarskýringunum á því hvers vegna við eigum að gefa eftir gagnvart Evrópusambandinu og það í þessu stóra grundvallarmáli sem meira að segja dómarar, meira að segja hæstaréttardómari, hafa bent á að standist ekki stjórnarskrá og það í máli sem utanríkisráðherra í sömu ríkisstjórn, reyndar á fyrra kjörtímabili, hafði reynt að halda uppi vörnum gagnvart Evrópusambandinu með, útskýra hvers vegna við ættum ekki að innleiða þetta. Og nú kemur annar hæstv. utanríkisráðherra og virðist vera búinn að skipta um lið. Er ríkisstjórnin búin að skipta um lið?“
Bjarni svaraði: „Virðulegi forseti. Ég held að menn sem vilja fara inn í umræðuna á þessum nótum, á þessum forsendum, að sérhver breyting á EES-lögunum til breyttrar framkvæmdar á þjóðréttarlegu skuldbindingunni sem felst í bókun 35 feli í sér brot á stjórnarskránni, þurfi þá aðeins að botna þennan málflutning og útskýra það fyrir manni. Ef niðurstaðan er sú að EES-innleiðingin á bókun 35 með EES-lögunum sé ófullnægjandi og sérhver breyting á því sé bara brot á stjórnarskránni, eru menn þá komnir á þann stað að EES-samningurinn gangi ekki upp gagnvart stjórnarskránni? Eru menn þá orðnir talsmenn þess að hætta bara í EES-samstarfinu? Eða eru menn að leita einhverra lausna? Þeir sem tala fyrir því að þeir sem vilja hreyfa sig í þessu máli ætli að fara gegn stjórnarskránni, þurfa að fylgja þeim málstað eftir og svara því hvort þeir eru tilbúnir til að verja EES-samninginn (Forseti hringir.) eða hvort þeir vilji losna við hann vegna þess að hann klagi upp á stjórnarskrána.“
Orðaskipti þeirra héldu áfram og lauk með þessum orðum Bjarna: „Hér segja menn að því sé haldið fram að EES-löggjöfin sé einhvern veginn betri. Ég hef aldrei sagt að hún sé eitthvað betri. Ég er einmitt búinn að vera að flytja fyrir því rök hér að við höfum allan rétt til að setja þær reglur sem okkur sýnist. Það er það sem tveggja stoða kerfið gengur út á. Það er það sem við sögðum í frumvarpinu sem lá fyrir þinginu í fyrra, að ef Alþingi kýs að setja reglur sem ganga þvert á EES-skuldbindingar þá hefur Alþingi til þess fullt svigrúm og getur gert það hvenær sem er og tekur þá bara afleiðingunum af því í EES-samstarfinu. Það er ekki að fullu í samræmi við skuldbindingu sem felst í bókun 35 en það breytir því ekki að Alþingi hefur allan rétt til þess. Þetta er algjört grundvallaratriði. Það var þetta sem ég átti við þegar ég sagði að sumir virtust misskilja þetta mál með þeim hætti að hér ætti að setja einhverjar reglur sem tryggðu að EES-rétturinn gengi alltaf framar vilja Alþingis. Það er bara ekki þannig. Það er ekki það sem við erum að ræða hér og ég er aldrei þeirrar skoðunar að Alþingi eigi ekki að eiga síðasta orðið, þvert á móti: Alþingi verður alltaf að eiga síðasta orðið.“
Frumvarpið sem Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, hefur lagt fram um innleiðingu bókunar 35 er samhljóða því frumvarpi sem Sjálfstæðisflokkurinn lagði mikið kapp á að fá samþykkt þegar hann var í ríkisstjórn.
Orðið á götunni er að fróðlegt verði að sjá hvort Guðrún Hafsteinsdóttir og aðrir forystumenn flokksins hafi nú skipt um kúrs og hyggist berjast gegn innleiðingu bókunar 35. Spurningin er hvort flokkurinn standi á prinsippunum eða hvort hann hringsnúist eins og vindhani.