Á þessari öld hefur orðið mikil breyting í bókalestri sem nú fer meira um eyrun en augun, jafnframt því sem mikið stökk hefur verið í útflutningi íslenskra bókmennta og þá ekki síst krimmanna. En liðnir eru þeir tímar þegar upplagið á söluhæstu bökunum var jafnvel 20 þúsund eintök. Halldór Guðmundsson, rithöfundur og höfundur nýrrar bókmenntasögu Íslands, er gestur Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Eyjunnar.
Hægt er að hlusta á brot úr þættinum hér:
Þetta er náttúrulega sko krimminn og sú mikla sala og útflutningurinn á íslenskum krimmum. Þetta hefur náttúrlega verið gríðarleg lyftistöng fyrir stærri bókaútgáfurnar.
„Já, þetta hefur verið og fyrir höfundana.og það svoleiðis. Já, af því þú veist, það er stórkostlega gaman að fá mælikvarða erlendra lesenda á það sem þú ert að gera. Ég varð þeirrar gæfu aðnjótandi þegar ég skrifaði ævisögu Halldórs Laxness sem var þýdd á nokkrum tungumálum að það var mjög forvitnilegt að sjá hvað menn sem ekki þekktu öll þessi smáatriði í 20. aldar sögunni í íslensku gátu séð við þetta og gátu fundið í þessu. Þetta hefur verið kannski merkilegasta þróunin á 21. öldinni að ég held að það séu gerðir einir svona 150 samningar um útgáfu á íslenskum bókum erlendis. Það er sem sé bara annan hvern dag er verið að selja einhverja íslenska bók til erlendra lesenda og það er gríðarleg breyting frá fyrri tímum.
Auðvitað var Halldór Laxness til dæmis mikið þýddur en engu að síður, ekki á svo óskaplega mörg mál, hans umboðsmaður var lögfræðiskrifstofa í Kaupmannahöfn. Menn voru ekki að vinna í þessu með sama hætti og gert er á síðari árum og þetta finnst mér hafa verið mjög svona ánægjuleg og góð þróun fyrir höfundana. Og hugsaðu þér, af því þú nefnir þetta náttúrlega með krimmana, ég held að Arnaldur Indriðason sé búinn að selja yfir 20 milljónir bóka í heiminum. Það eru bara ekki margir menn sem hafa gert það.“
Nei, þetta setur hann í bara einhverja toppprósentu, bara allra rithöfunda.
Og svo eru náttúrlega núna komnir fleiri sem fara víða og þess utan má ekki gleyma bara íslenskum bókmenntunum sem eru kannski hefðbundnari fagurbókmenntir sem hafa farið líka um og verið þýddar á tugi tungumála eins og Englar alheimsins hans Einars Más og margir fleiri höfundar.“
Já, það er mikið að gerast í dag. Hvað er svona, hverjir eru helstu straumarnir í dag?
„Já, ef maður vissi það nú. Þegar þú skrifar svona bókmenntasögu þá náttúrlega ertu að reyna að sjá þetta, sjá svona samhengi og helstu strauma. Þú þarft fjarlægð á þá. Maður sér þetta, ég tel mig geta sagt þetta mjög skýrt um 20. öldina en á mun erfiðara með það núna en ég auðvitað samt fer inn á það og nefni marga af þessum yngri höfundum bara, mér finnst það vera hlutverk svona bókar að vekja athygli á því sem er að gerast núna. En það sem er mest áberandi, finnst mér, er að það eru komnar hingað bókmenntagreinar og skrifaðar hér sem ekki voru það til skamms tíma. Það er til dæmis miklu meira um fantasíur, það eru vísindaskáldsögur, ýmiss konar dystópíur eða svona svartsýnissögur, heimsendasögur og svona. Það voru til eitt og eitt dæmi á 20. öld en núna kannski koma fleiri, fleiri verk af þessu tagi. Það er gríðarleg fjölbreytni í þessu. Ég held ef við settumst hér aftur eftir 30 ár þá gætum við sigtað út hvað hafi verið mikilvægast, hvað sitji eftir. Sá tími er ekki alveg kominn.
En svo er það náttúrlega hin grundvallarbreytingin. Meirihluti allra þeirra bóka sem fólk les núorðið á Íslandi er í gegnum eyrun.“
Já, það nefnilega hefur orðið mikil breyting. Mig langaði einmitt að koma inn á þetta.
„Þetta er stóra breytingin á bókamarkaðnum. Hann var mjög sterkur um síðustu aldamót, mjög stór og upplag á stærstu metsölubókum gat farið yfir 20.000. Svo helst þetta nú kannski aðeins fram eftir öldinni. En það fer að breytast. Það minnkar svolítið áhuginn á prentun eftir 2010 og svo 2017, 2018, kemur sem sé hljóðbókin með streymisveitum. Það var margbúið að gefa út hljóðbækur áður og ég gerði þetta einhvern tíma í gamla daga, átta geisladiskar, þetta var agalegt fyrirtæki að koma þessu frá sér. En eftir að digitaliseringin verður svona sterk og eftir að svona smartsímarnir koma þá verður miklu auðveldara að handhafa þetta. Og hér og á Norðurlöndum þá er þetta þannig að hátt í 60% bóka eru hljóðbækur.“
Skerum við okkur úr frá öðrum?
„Norðurlöndin skera sig svolítið úr frá öðrum svæðum. Þetta er ekki orðið jafn stórt í Þýskalandi og ekki heldur í hinum enskumælandi heimi. Fer alls staðar vaxandi en hér hefur þetta orðið mjög stórt. Það sem er erfitt í þessu fyrir höfunda og útgefendur og rétthafa, það eru hvað greiðslurnar eru lágar. En það sem maður verður að sjá hins vegar sem jákvætt í þessu, það er auðvitað fullt af fólki að hlusta á bækur sem ekki myndu gera það ella. Og hlustunin fer mjög mikið upp á við á hverju ári og það er hlustað á allt mögulegt. Og að þessu leyti erum við pínulítið bara komnir til okkar upphafs, það er að við viljum láta segja okkur sögu.“
Hægt er að hlusta á hlaðvarpið í heild sinni hér:
Einnig er hægt að hlusta á Spotify.