Því hefur verið fleygt í þjóðmálaumræðunni á síðustu misserum að Íslendingar eigi fyrst og helst að hugsa um sjálfa sig, en fjármunir, sem varið er til þróunarsamvinnu á erlendri grundu, eigi betur við í héraðinu heima við, enda verkefnin næg og ærin á þeim slóðum.
Það vill hins vegar svo til að Íslendingar eru aflögufærir, og hafa lengi verið í fullum færum að láta til sín taka á fátækustu svæðum jarðar. Og þeir eiga auðvitað að finna til ábyrgðar í þessum efnum, og breiða út faðminn í stað þess að halda að sér höndum.
Það er mennska. Og við ætlumst einmitt til þess sama af öðrum, þegar við rötum sjálf í okkar mestu ófarir af völdum efnahags og náttúru.
Áminning þessa efnis var rist og þrykkt í sálu þess sem þetta skrifar á ferðalagi um nokkur efnaminnstu héruð Malaví í suðaustanverðri Afríku í vikunni sem nú er að líða, en hún var farin á vegum þróunarsamvinnuskrifstofu utanríkisráðuneytisins til að gæta þess að vel sé farið með þá opinberu fjármuni sem eru lagðir til uppbyggingar í landinu. Það er nefnilega eitt af meginverkefnum Alþingis að gæta aðhalds í útgjöldum ríkisins, og rækja þar eftirlit af ábyrgð.
En niðurstaðan í téðu tilviki er ekki einvörðungu sú að krónan vex hvergi betur en við aðstæður sem þessar, heldur nær hún líka þangað sem neyðin er mest. Í krafti náinnar samvinnu við yfirvöld í fimm af hartnær þrjátíu héruðum landsins hefur tekist að hlúa svo vel að grunnþáttum samfélagsins að heimamenn eru í fullum færum að taka við keflinu og reisa stoðir þess með styrkum innviðum. Og þetta er meginerindið, að styðja heimamenn við að brjótast út úr fátækt.
Áhrifaríkast var að sjá ósnortna gleði snauðasta fólksins í þessu fátækasta landi Afríku þegar verið var að taka í gagnið tæknilega vel útbúið fæðingarsjúkrahús í Makanjira í austasta hluta Malaví á mánudag. Það var sungið og klappað allan daginn af þúsundum vígslugesta. Og það var haft á orði, jafnt af ráðamönnum og almúganum að hann vissi betur hvar Ísland væri statt á kringlu jarðar en Bandaríkin og Kína. En margir undruðust líka hvað lítil þjóð eins og Ísland getur gert stóra hluti úti í heimi.
„Hvergi hefur íslenska krónan það betur en í landi af svona tagi. Hún þrútnar beinlínis af kærleika og eykur verðgildi sitt til þvílíkra muna að það verður ekki leikið eftir annars staðar.“
Í þessu tilviki leggja Íslendingar til um 300 milljónir úr sjóðum sínum til að reisa fæðingarspítala á þessum slóðum sem umbyltir aðstöðu og lífsgæðum fæðandi kvenna. Gleymum því heldur ekki að fimmtugur af mæðradauða í Malaví á sér stað í þessu sárasnauða héraði landsins. Og munum það líka eftirleiðis, að ófrískar heimakonur hafa jafnan verið beðnar um þrennt af ófaglærðu aðstoðarfólki sínu þegar dregið hefur að fæðingarstundinni, en það eru hanskar, hnífur og kerti. Hanskar af hvaða tagi sem er til að taka á móti barninu, og hefur einu gilt hvað þeir bera utan á sér, hnífur úr eldhúsinu til að skera á naflastrenginn, og má nærri geta hvað leynst getur á honum, og kerti svo hjálpsamir sjái til verka, enda ekkert að stóla á rafmagnið í sveitinni, ef það er þá til staðar. Og vitaskuld eru sögur af sýkingum vegna þessara aðfara jafn margar og þær nísta sálu tilheyrenda, enda er dauðinn jafnan í gættinni.
Íslendingar hafa unnið að svona verkefnum í Malaví frá 1989, í fyrstu við að leiðbeina heimamönnum við fiskveiðar, en seinna með fjölþættum verkefnum á borð við vatnsbrunnagerð, sem einvörðungu í fyrstu héruðum þróunarsamvinnunnar hafa skilað um 1100 brunnum með drykkjarhæfu vatni sem þjónar nálega 300 þúsund íbúum í einni og sömu sveitinni á sérhverjum degi.
Á seinustu árum hafa verkefnin verið héraðsdrifin með heimamönnum – og á ábyrgð þeirra þegar íslenska stuðningnum sleppir, því ella verður ekki af samvinnunni – en þau varða ekki aðeins uppbyggingu á fæðingarsjúkrahúsum, heldur líka á þjónustu við fórnarlömb misheppnaðra fóstureyðinga, sem eru bannaðar í landinu, og smíði almennra spítala og kaupum á sjúkrabifreiðum og öðrum þeim tækjum sem starfseminni fylgja, heldur einnig á barnaskólum víða um landið með bekkjum og stólum og rennandi vatni og rafmagni, en þá er raunar ónefndur sérstakur stuðningur við fötluð börn og þjálfun í sérkennslu fyrir kennara þeirra, sem er auðvitað andlagið í allri þessari umbyltingu, sem fjallar öðru fremur um mannréttindi.
Hvergi hefur íslenska krónan það betur en í landi af svona tagi. Hún þrútnar beinlínis af kærleika og eykur verðgildi sitt til þvílíkra muna að það verður ekki leikið eftir annars staðar. Og höfum það líka almennilega jarðfast að íslenskir starfsmenn sendiráðsins eru tveir að tölu, að ferðast öllum stundum um víðfeðmt landið, og hlífa sér hvergi, en líklega skilar ekkert opinbert embætti viðlíka árangri úti á meðal fólks, ef mið er tekið af starfsmannafjölda.
Höfum svo í huga á tímum bakslags í lýðréttindum, og uppgangs afturhalds og einangrunarhyggju, að það býr enn þá í orðinu manneskja að bæta líf annarra, og leggja sem flestum lið, jafnt nær og fjær, en hinn kosturinn er vitaskuld sá að láta sér fátt um finnast og snúa baki við bágstöddum.
En þá blasir það líka við hvor niðurstaðan er manneskjulegri, og ef því er að skipta; kristilegri.