Eyjan

Óttar Guðmundsson skrifar: Hinir óskiljanlegu

Mynd
Samsett mynd/Skjáskot af vef RÚV
Mynd

Íslendingasögur leggja áherslu á að menn kunni að koma fyrir sig orði. Í Brennu Njálssögu segir um Skarphéðinn Njálsson: „hann var gagnorður og skjótorður.“ Höfundi bókarinnar þótti þetta mikill kostur á mönnum enda voru kálfskinnin dýr og miklu skipti að allur texti væri stuttur og hnitmiðaður. Nú er öldin önnur enda setja nútímafjölmiðlar engar skorður á hið talaða orð. Tveggja manna tal á Samstöðinni getur varað í fjóra tíma eða meira.

Á síðustu vikum hafa tveir sómamenn úr hæstu þrepum samfélagsins gert róttækar breytingar á stöðu sinni. Jón Gnarr yfirgaf þingflokk Viðreisnar og Hörður Arnarson sagði upp sem forstjóri Landsvirkjunar. Báðir hafa komið fram í fjölmörgum löngum viðtölum til að skýra út fyrir almenningi af hverju þeir ákváðu að taka pokann sinn.

Ég hlustaði á nokkur viðtöl við þá báða en var því miður litlu nær. Þeim tókst að tala í svo marga hringi að hlustandinn týndi þræðinum. Þjóðin dáðist að þeim félögum enda voru þeir ávallt viðræðugóðir og fúsir að tala við blaðamenn. Eftir því sem lopinn var teygður lengra urðu viðmælendur þó skilningssljórri á svipinn. Þeir eins og aðrir misstu einbeitingu og vissu undir lokin ekki sitt rjúkandi ráð. Niðurstaðan var þó sú að Herði var annaðhvort vantreyst eða treyst og Jón fékk ónógan eða of mikinn stuðning við áhugamál sín. Menn voru þó alls ekki sammála um þessa túlkun. Fjármálaráðherra sagðist treysta Herði og Jón Gnarr undirritaði stuðningsyfirlýsingu við fólkið sem vantreysti honum. Hver og einn gat því túlkað þetta að vild. Mér fannst stundum eins og þeir væru að gera gys að fjölmiðlum með þessum skemmtilega leikþætti. Hæfileikar Jóns á því sviði eru ótvíræðir en Hörður rísandi stjarna.

Það þarf mikla útsjónarsemi og snilligáfu til að tjá sig í löngu máli á svo óskýran hátt að enginn botni upp eða niður í orðræðunni. Góðar gáfur eru líka nauðsynlegar til að skrifa torskildar bækur. Megas frændi minn skrifaði eitt sinn skáldsöguna Björn og Sveinn sem þótti gjörsamlega óskiljanlegt snilldarverk. Sjálfur sagði hann að bókin yrði skiljanlegri ef hún væri röppuð hratt og taktvisst. Skarphéðinn þurfti ekki að rappa en kannski ættu Jón og Hörður að taka mið af orðum skáldsins og rappa sig í gegnum næstu viðtöl.