Talsvert var þýtt úr erlendum tungumálum á íslensku á 12. og 13. öld, um svipað leyti og Íslendingasögurnar voru fyrst færðar í letur hér á landi. Mikið var þýtt af guðfræðilegum ritum. Um 1400 verður mikil lægð bæði í íslenskum skrifum og þýðingum sem stóð mikið til fram á 19. öld. Á 20. öld varð mikil gróska á ný og er enn. Krafan til þýðinga hefur þó breyst mikið á seinni árum en fram eftir síðustu öld tíðkaðist gjarnan að þýðendur styttu textann og slepptu sumu. Halldór Guðmundsson, höfundur Líf í bókun, bókmenntasögu Íslands, er gestur Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Eyjunnar.
Hægt er að hlusta á brot úr þættinum hér:
Það er eitt sem mig langar til að koma aðeins inn á. Nú eru bókmenntir alþjóðlegar og bókmenntir fara á milli málsvæða í gegnum þýðingar. Hvernig var þeim málum háttað hér á Íslandi? Hvenær fórum við svona fyrir alvöru að fá heimsbókmenntirnar þýddar?
„Já, þetta er dálítið góð spurning. Það var einhver bara allsherjar skrifsýki í landinu á 13. öld. Það er alveg stórmerkilegt. Þá er líka þýtt. Þá eru menn að þýða, fræg þýðing er Alexanders saga. Hugsanlega var hún þýdd í kennsluskyni, það veit það enginn alveg …“
Þá í klaustrum?
„Já, hugsanlega líka þar. Þar var mikil ritmenning og þar þýddu menn líka til dæmis Bretónasögur og fleiri sögur og söguljóð. Sum á laust mál. Og þarna gerist heilmikið í þýðingum en svo er dálítið þetta sama, það er rof um 1400 og það verður erfiðara.“
Þá hefst náttúrlega eitthvað svona, ja, hvað á maður að segja, það er svona niðurlægingartímabil í okkar sögu.
„Já, það hefur alltaf verið kallað það en yngri sagnfræðingar og nútímasagnfræðingar, þeir hérna mótmæla þessu mjög og segja að íslenskir bændur til dæmis hafi ekki haft það neitt meira skítt en danskir bændur. En þegar maður horfir á þessa svona menningarsögulegu þætti þá verður mikið rof.
Svo koma náttúrlega þýðingar í kringum Biblíuútgáfuna sem við vorum að ræða. Þá eru líka þýdd guðfræðileg rit. En svona þessar stóru heimsbókmenntir koma frekar seint. Það er þýtt svolítið á 18. öld af ævintýrasögum og það er líka gert svo sem enn meira á 19. öldinni. En til dæmis stóra framlagið til heimsbókmenntanna, það er eins og þýðingar Jóns á Bægisá seint á 18. öld, byrjun þeirrar nítjándu, og þær eru náttúrlega lengi vel ekki prentaðar en þarna eignast Íslendingar aftur heimsbókmenntaþýðingar eins og þeir höfðu átt á 13. og 14. öld. Þannig að það verður rof. Svo er mikið þýtt á seinni hluta 20. aldar og síðan.
Það breytist líka viðhorfið til þýðinga. Nú vil ég ekki verða allt of tæknilegur en til dæmis á fyrri hluta 20. aldar þá er mikið þýtt, margar stórar þýðingar gerðar og þær eru jafnvel styttar. Menn bara slepptu ýmsu eftir því hvað þeim fannst mikilvægt. Það er til dæmis fræg þýðing Kristmanns Guðmundssonar á Elskhuga Lady Chatterley sem er dálítið djarfasta bók þarna á fyrri hluta 20. aldar, og hún kom út og það mátti ekki selja hana í bókabúðum og var prentuð á bleikan pappír og seld svona undir borði og þetta er á stríðsárunum. En sú þýðing, þar sleppti Kristmann ýmsum svona heimspekilegum hugleiðingaköflum af því honum fundust þeir óþarfir. En það var það sem D. H. Lawrence fannst það verðmætasta í bók sinni.
Sú breyting sem áherslan sem hefur orðið á seinni hluta 20. aldar og núna á 21. öld er að þetta séu heildstæðar alvöru þýðingar og helst að það sé þýtt úr frummáli.“
Já, já, maður tekur eftir því að krafan til þýðinga hefur breyst og það þarf ekkert að fara að ýkja langt aftur í tímann.
„Nei, nei, á sjötta áratug 20. aldar er enn þá verið að gefa út styttar þýðingar af heimsbókmenntum en svo breytist þetta og það kemur margt til. Bæði gat fólk farið að vinna við skriftir. Það verður til launasjóður rithöfunda og það verður til þýðingarsjóður og alls ekki vanmeta áhrif þessa. En svo er þetta bara, okkur hefur alltaf vegnað best í miklum samskiptum við umhverfið. Og bókmenntirnar blómstra þegar við erum í miklum samskiptum við umhverfið eins og við erum á 13. öld, 12. og 13. öld. Og við sjáum þetta líka og þá fer fólk líka að vera forvitnara um hvað verið er að gera annars staðar.
Þó að það sé nú held ég ekki frá Goethe sjálfum þá er það að hugtakið er frá hans tíð, sem sé heimsbókmenntir, að það væri til eitthvað sem héti heimsbókmenntir og svo byrja menn að kenna samanburðarbókmenntir, bera saman bækur mismunandi þjóða. Þetta er nítjándu aldar hugsun sem síðan styrkist. Hún er ekki eldri en það.“
Er ekki eldri en það. Maður tekur eftir því, það er mikil gróska til dæmis í íslenskri bókaútgáfu, hjá íslenskum rithöfundum. Maður sér alveg áþreifanlega áhrif sem erlend verk hafa hingað til lands.
„Já, já, það hefur stundum verið tekið sem dæmi til dæmis hvað Hundrað ára einsemd var áhrifamikil bók fyrir marga íslenska höfunda, þýdd frekar snemma og þetta gildir reyndar um evrópskan bókamarkað. Og ég hef aðeins velt því fyrir mér, þegar að krimminn slær í gegn hérna loksins um aldamótin 2000. Það voru auðvitað skrifaðar ágætar tilraunir áður en hann er mikið lesinn og verður mikil uppáhaldsgrein íslenskra lesenda um skeið á sama tíma og norræni krimminn er að slá í gegn alþjóðlega.
Við erum miklu oftar samferða einhverjum tendensum og straumum í útlöndum heldur en við kannski gerum okkur grein fyrir. En þetta hafði mikið að segja auðvitað fyrir bókamarkaðinn.“
Hægt er að hlusta á hlaðvarpið í heild sinni hér:
Einnig er hægt að hlusta á Spotify.