Eyjan

Halldór Guðmundsson: Ekki ein einasta Íslendingasaga til í frumriti

Mynd
Halldór Guðmundsson
Halldór Guðmundsson. Mynd DV/KSJ

Engin Íslendingasaga er til í frumriti og handritin okkar eru afrit af afritum. Litlu mátti muna að 400 íslensk handrit yrði brunanum mikla í Kaupmannahöfn að bráð en þeim var bjargað á síðustu stundu. Samt er það svo að um 80-90% af gömlu handritunum okkar séu glötuð. Halldór Guðmundsson, rithöfundur, gaf á dögunum út Líf í bókum, bókmenntasögu Íslands í einu bindi. Halldór er gestur Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Eyjunnar.

Hægt er að hlusta á brot úr þættinum hér:

„Hugmyndin er sú að þetta sé bók handa almennum lesendum bara úti í bæ sem hafa gaman af íslenskum bókmenntum og vilja kannski vita eitthvað meira um bókmenntasöguna og samhengi hennar. Ég reyni sem sé að segja hana alla á rösklega 500 síðum en hún verður nú tæplega 600 með öllum heimildum og slíku.“

Ja, það er yfir 50 síður, er það ekki, bara nafnaskrá og tilvísanir og tilheyrandi?

„Maður reynir að uppfylla þetta en þetta er náttúrulega líka til þess að höfundar geti gáð hvort þeir eru í bókinni.“

Það verður nú að segjast eins og er að svona rit, gagnsemin af svona riti, hún helmingast eða bara fer niður í brot af því sem hún annars væri ef það vantar þessa nafnaskrá þar sem þú getur farið og flett upp á tiltekinni blaðsíðu.

„Ég er alveg sammála því. Þetta er þrátt fyrir allt ekki bók sem þú bara lest í einni bít eins og skáldsögu heldur er þetta líka rit sem þú átt að geta flett upp í. En það er svolítið merkilegt. Það eru til mjög fínar íslenskar bókmenntasögur. Ein svakalega stór í fimm bindum sem Mál og menning gaf út á sínum tíma og ég átti hlutdeild í og svo voru tvö stór bindi sem komu hjá Hinu íslenska bókmenntafélagi fyrir nokkrum árum. En ég held ekki að einn maður hafi skrifað þetta í einu bindi síðan 1962 en þá var það Stefán Einarsson sem lengi hafði verið prófessor í Ameríku sem gaf út íslenska bókmenntasögu í einu bindi. Þannig að það er langt síðan eitthvað svona hefur komið og það gerði það auðvitað freistandi að spreyta sig á þessu.“

Bókmenntasagan, hún er að gerast bara meðan við sitjum hérna, þá er bókmenntasagan að verða til. Þetta hættir ekkert. Þú lýkur aldrei þessu verki.

„Nei, nei og svo koma aðrir og horfa öðruvísi á það og svo framvegis. En svona hugmyndin hjá mér var líka dálítið sú að flétta þetta saman við söguna og svona samfélagsþróun af því bókmenntahefðin okkar hún lifði allt af. Hún lifði af erfiðar aldir og lifði af og af því byrja ég nú bókina á brunanum í Kaupmannahöfn.“

Já, já, þú byrjar nefnilega þar.

„Já, þú ert að grípa lesandann með einhverri mynd. Þessi svakalega mikli bruni í Kaupmannahöfn, þar sem 400 íslensk skinnhandrit hefðu getað brunnið ef þeim hefði nú ekki verið bjargað á síðustu stundu og svo brunnu samt mikil verðmæti og bara að sjá þetta fyrir sér er, fannst mér vera, góður inngangur að því að tala um handrit almennt og hvað þau hafi geymt og hvernig þetta er allt saman. Vegna þess að það er líka athyglisvert að vita þó svo að þarna hafi verið mikil björgunaraðgerð á síðustu stundu. Svo megum við ekki gleyma því sem við gerum alltaf við Íslendingar að 15.000 Kaupmannahafnarbúar misstu húsnæði sitt í þessum hrikalega bruna.“

Já, það var nú bara svona aukaatriði í okkar huga.

„Okkur fannst það alveg falla í skuggann. En sennilega eru, segja fræðimenn, 80-90% af þessum gömlu handritum Íslendinga glötuð. Það sem við eigum eru afskriftir af afskriftum af afskriftum og afskriftum. Og sumt sem við höldum að sé mjög gamalt eigum við bara í gerðum frá sautjándu öld. Og það er dálítið gaman að hugsa út í þetta. Það er engin Íslendingasaga til í svokölluðu frumriti.

Svo eru menn oft að reyna að rekonstrúera þau, hversu árangursvæn sem slík viðleitni er. En þessar þverstæður allar að allar þessar miklu bókmenntir 13. aldar eru varðveittar í seinni tíma handritum. Það er til eitt skinnhandritsbrot af Egils sögu sem talið er mjög gamalt, gæti verið frá 1240, en sagan sennilega skrifuð 20 árum fyrr, svo það er heldur ekki frumrit.

Fleira svona, ef við tölum aðeins um þetta, bara varðveisluna, af því mér fannst líka mjög gaman að skoða ekki bara bókmenntirnar sjálfar heldur líka bara umhverfi þeirra og hvernig þetta þróaðist, þá eru þetta, sko, skinnhandritin eru náttúrlega til þess að gera fá. Svo er skrifað á pappír og þegar byrjað er að prenta þá er það eiginlega bara guðsorð alveg fram á 19. öld, eða sem sé fram að Hrappseyjarprentsmiðju undir lok 18. aldar. Þannig að sumt sem við eigum, það hefði nánast getað glatast.

Og það er stóra saga frá Skaftáreldum sem eldklerkurinn skrifaði. Hún var til í einu eintaki og hann bað um að því yrði eytt þegar fjölskyldan hefði lesið það. Það er rit sem við teljum að marki tímamót í okkar bókmenntasögu sem kom ekki fyrir sjónir nokkurs manns fyrr en um 1900. Þannig að ein pælingin sem maður situr uppi með, bíddu, er þetta bókmenntasaga þegar að þetta hafði engin áhrif á neinn?“

Já, já, góður punktur.

„Sum voru til í mörgum afritum og gengu milli manna meðan hún var skrifuð upp þó nokkrum sinnum, ævisaga Jóns Indíafara og svona. En önnur voru bara sárasjaldgæf og hefðu getað glatast. Það á líka við um ýmis eldri handritin. Konungsbók Eddukvæða sem geymir alveg stórkostlegan fjársjóð, það munaði litlu að hún glataðist. Og þar sem við eigum ekki jafn margar afskriftir þar er þetta oft í stórri hættu.

En þetta á við víðar. Bjólfskviða hin enska, Það lá við að hún brynni, ef svo má segja. Þar með hefðu þeir glatað sinni stóru sögu.“

Hægt er að hlusta á hlaðvarpið í heild sinni hér:

 

 

Einnig er hægt að hlusta á Spotify.