Eyjan

Nína Richter skrifar: Enginn fátækur í faginu

Mynd
Mynd

Ég er komin til Búdapest í annað sinn. Í fyrra kom ég hingað í vikulanga skemmtiferð en núna er ég hér á ráðstefnu. Síðast gafst mér tími til að kynna mér sögu og menningu borgarinnar að einhverju marki. Hæðirnar við Dóná mynda Búda, en Pest er á sléttunni handan árinnar. Árið 1873 voru Búda, Pest og Óbuda sameinaðar í Búdapest, höfuðborg Ungverjalands.

Landið byggja Ungverjar og saga þeirra er stráð sorgum og sigrum. Einn slíkur Ungverji var á ráðstefnunni að leiða verkefni sem ég þurfti að koma að. Hann var tíu árum yngri en ég, myndarlegur og snyrtilega klæddur. Úrið hans var dýrt og hann veifaði því óhikað. Það sást í ökklana fyrir ofan strigaskóna og buxurnar voru straujaðar. Evrópskur peningur í þessu.
Hann sagðist vera frá Búda. Í raun væru allir í faginu frá Búda. Enginn væri frá Pest.
Hann lækkaði róminn.

„Það er bara þannig. Í Búda eru sko dýru húsin og villurnar. Ég er alinn þar upp.“

Ég greindi daufan breskan hreim í gegnum þykkan ungverskan hreim. Hann hafði verið á Englandi í einn vetur að vinna fyrir frænda sinn. Í faginu. Hann var upp með sér yfir því að ég skyldi greina hreiminn. „Ungverjarnir skilja þetta ekki. Þeir heyra ekki hreiminn á enskunni minni,“ sagði hann og blikkaði mig. Hann var búinn að blikka mig fjórum sinnum í þessu samtali. Ef hann væri ekki þessi týpa hefði ég haldið að hann væri með eitthvað í auganu.

Hann lækkaði róminn aftur. „Þú veist, fólkið í Pest er þannig að það kann ekki að … ég vil ekki hljóma eins og algjör hálfviti, en … hvað er orðið? Ef það fer á veitingastað með þremur göfflum við diskinn þá veit það ekkert hvað það á að gera.“ Svo hló hann.

Síðan barst talið að verkefninu hans. Hann vísaði til samstarfskvenna sinna sem „hinna fallegu aðstoðarkvenna“ sinna. Norrænu þátttakendurnir í spjallinu litu allir umsvifalaust niður á skóna sína, eins og það væri einhver óyrtur samnorrænn siður. Við á Norðurlöndunum erum miklu betri í að fordæma karlrembu en að bregðast við henni í beinni.

Ég velti fyrir mér íslensku útgáfunni af þessum manni og hvernig hún væri. Væri það tappi úr Garðabænum eða Vesturbænum. Alinn þar upp. Einhver sem hefði farið til Danmerkur að vinna hjá frænda sínum. Í faginu.

Við viðurkennum stéttaskiptinguna heima ekkert sérstaklega fúslega. Hér í Ungverjalandi er þægilegt að hafa Dóná til að aðskilja ríka frá fátækum, menntafólk frá þeim sem eru ekki í faginu og fólk sem kann borðsiði frá hinum ódönnuðu. Þetta er allt miklu óljósara heima, þar sem við lörpum um í jafnréttisparadís og það má ekki tala um stéttaskiptingu.

Vinur minn blikkaði mig svo einu sinni enn. „Takk fyrir að skilja mig,“ sagði hann. Ég veit ekki hvort ég skildi hann. Ég veit ekki einu sinni hvort hann skilur sjálfan sig. Eða hvort honum myndi líka það sem kæmi í ljós ef hann gerði það.