Eyjan

Þorsteinn Pálsson: Bændur heimtuðu nei – við getum þetta sjálf! – Er það svo?

Mynd

„Afstaða bænda var snar þáttur í þeirri ákvörðun, sem fólst í niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar, að láta  Ísland standa án pólitískrar baktryggingar í samstarfi Evrópuþjóða um vestræn gildi og frjáls viðskipti, sem efnahagur þjóðarinnar á allt undir. 

Um leið höfnuðu bændur aðild að einhverju umfangsmesta styrkjakerfi í landbúnaði sem þekkist og stuðningskerfi við atvinnuháttabreytingar í veikum byggðum. Boðskapurinn var: Við gerum þetta sjálf.

Í þjóðaratkvæðagreiðslunni neituðu bændur jafnframt að upplýsa þjóðina, sem borgar landbúnaðarstyrkina, hvert þeir stefna. Hver er íslenska leiðin utan við reglur markaðsbúskaparins og  án alþjóðlegrar samvinnu og aðstoðar? Hvers vegna fær þjóðin ekki að vita neitt um efni hennar?

Fyrir nokkrum vikum skaut upp gömlu deilumáli um tollfrelsi eða tollvernd á íblönduðum ostum, sem notaðir eru til pítsugerðar. Það er gott dæmi um að hvergi örlar á heildar stefnumörkun umfram það að segja nei. Engu er líkara en alíslenska leiðin sé bara fólgin í þessu eina orði: Nei?“

Svona hefst pistill Þorsteins Pálssonar, Af kögunarhóli, á Eyjunni í morgun. Þorsteinn segir sauðfjár-, kúa- og grænmetisbændur eiga greiðari leið að hjörtum landsmanna en aðrar atvinnugreinar. Af þeim sökum eru farnar hjáleiðir frá meginleið markaðsbúskaparins til að styðja við bændur.

Þetta eigi hins vegar ekki við um iðnaðarframleiðslu á hvítu kjöti sem byggir nær eingöngu á innfluttu fóðri og styður ekki við byggðafestu eins og hefðbundinn landbúnaður

Þorsteinn skrifar að þeir tímar þegar sjávarútvegur og landbúnaður áttu að halda uppi störfum á landsbyggðinni án tillits til þjóðhagslegrar hagkvæmni séu liðnir. Nú og í framtíðinni eigi landsbyggðin mest undir því hvað atvinnusköpun varðar að aðrar atvinnugreinar þroskist þar. Velferð fólksins byggist svo á því að þær séu sjálfbærar.

Hann segir það ekki vera tilviljun að sterkustu bæjarfélögin á landsbyggðinni séu þau sem byggja á rekstri fyrirtækja sem taka lán í vaxtaumhverfi Seðlabanka Evrópu og kalla hvorki eftir hjáleiðum né styrkjum.

„Forysta bænda nálgast viðfangsefnin eins og svefngengill, sem er ómeðvitaður um umhverfi sitt. Það gengur hins vegar ekki til lengdar að láta landbúnaðinn fremur en aðra þætti í þjóðarbúskapnum ráðast af þess konar aðstæðum.

Mikilvægt er því að stjórnvöld taki frumkvæði og móti landbúnaðarstefnu í almannaþágu. Það þarf jafnframt að gerast í ljósi þess almenna og víðtæka skilnings, sem landsmenn hafa á íslenskri framleiðslu lambakjöts, mjólkur og grænmetis.“

Þorsteinn leggur til að heildstæð stefnumörkun byggi á málamiðlun sem tekur tillit til lambakjöts-, mjólkur- og grænmetisframleiðslu og afnemur í áföngum tollvernd fyrir iðnaðarframleiðslu á hvítu kjöti.

„Málamiðlun  af þessu tagi myndi byggja á þeim skilningi að hjáleiðir um meginreglur markaðsbúskaparins eigi aðeins að ná til þeirra hefðbundnu búgreina, sem ekki geta staðist kröfur markaðarins en þjóðin vill eigi að síður slá skjaldborg um á landsbyggðinni.

Með öðrum orðum: Bændur yrðu teknir fram fyrir neytendur þegar kemur að mjólkurframleiðslu. En þegar kemur að iðnaðarframleiðslu á hvítu kjöti víki sérhagsmunir fárra fyrir hagsmunum fjöldans.“