Eyjan

Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar: Lífsrækt – Hvaða menningu erum við að skapa?

Mynd

Hvað gerist þegar valdamesta fólk heims sýnir með orðum sínum og hegðun að það sé í lagi að niðurlægja aðra, hóta þeim eða ala á tortryggni gagnvart heilum samfélagshópum?

Hvað gerist þegar árásargirni verður merki um styrk, kurteisi talin veikleiki og sá sem hrópar hæst fær mesta athygli?

Við þekkjum öll muninn á því að lifa í umhverfi þar sem ríkir góðvild, traust og hvatning og því að vera innan um reiði, ótta og tortryggni. Í öðru umhverfinu finnum við öryggi og lífsgleði. Í hinu fer orkan í áhyggjur og varnir.

Leiðtogar skapa fyrirmyndir

Bandaríkjaforseti hefur gert persónulegar árásir, niðrandi viðurnefni og harðorðar ásakanir að áberandi hluta stjórnmálastíls síns.

Hættulegasta afleiðingin er ekki endilega einstök ummæli heldur sú menning sem getur skapast þegar fólk fer að líta á slíka framkomu sem eðlilega. Þegar leiðtogi niðurlægir andstæðinga sína geta fylgjendur hans fengið þau skilaboð að þeim sé heimilt að gera slíkt hið sama.

Steve Bannon, fyrrverandi ráðgjafi Trumps, hefur lýst þeirri aðferð að yfirgnæfa fjölmiðla og almenning með stöðugu flóði fullyrðinga, deilna og upphlaupa. Þegar næsta hneyksli tekur sífellt við af því síðasta þreytist fólk, missir yfirsýn og traustið veikist.

Við eigum að gera meiri kröfur til þeirra sem hafa mest áhrif, ekki minni. Leiðtogar eru fyrirmyndir, hvort sem þeim líkar það betur eða verr. 

Á bak við hópinn er manneskja

Nýleg orðaskipti Elliða Vignissonar, bæjarstjóra Ölfuss, og Jasminu Vajzovic minna okkur á mikilvægi þess að vanda hvað við segjum. 

Elliði sagði óheftan straum innflytjenda, sérstaklega múslima, valda skaða. Jasmina, sem er múslimi og hefur tekið virkan þátt í íslensku samfélagi um árabil, svaraði með áleitinni spurningu: „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“

Elliði viðurkenndi síðar að hafa sett alla múslima undir einn hatt og leiðrétti ummæli sín. Hann tók jafnframt fram að Jasmina hefði ekki valdið skaða heldur væri góð viðbót við samfélagið.

Þessi orðaskipti sýna hversu mikilvægt er að greina á milli málefnalegrar gagnrýni og alhæfinga um fólk. Þau sýna líka að við getum hlustað á gagnrýni og endurskoðað orð okkar.

Við eigum að geta rætt innflytjendastefnu, trúarbrögð og samfélagsleg vandamál af hreinskilni og með rökum. En enginn á að þurfa að verja manngildi sitt vegna trúar eða uppruna.

Hver manneskja á að njóta virðingar og bera ábyrgð á eigin gjörðum.

Friður krefst hugrekkis

Í Qigong-kennslu minni legg ég áherslu á að hver manneskja sé einstök og lífið dýrmætt. Við höfum ólíkar skoðanir, hæfileika og reynslu en sameiginlega þörf fyrir öryggi, virðingu og að fá að njóta okkar.

Ein mikilvægasta hugsunin í þeirri lífssýn sem ég kenni er einföld: Okkur líður best þegar fólkinu í kringum okkur líður líka vel.

Þess vegna þurfum við að rækta með okkur góðvild, vera hvetjandi og hjálpa hvert öðru að nýta hæfileika okkar. Þegar við lifum í ótta og kvíða dregur úr orku, frumkvæði og lífsgleði. Þegar við finnum fyrir öryggi og stuðningi verður lífið léttara og skemmtilegra.

Qigong kennir okkur meðal annars að rækta innri ró, jafnvægi og meðvitund um eigin viðbrögð. En innri friður merkir ekki að við eigum að þegja þegar við verðum vitni að fordómum eða niðurlægingu.

Þvert á móti þurfum við að hafa nægan innri styrk til að segja af ró og festu: „Þetta finnst mér ekki í lagi.“

Í stað þess að svara reiði með reiði getum við spurt: „Af hverju finnst þér þetta? Á hverju byggir þú þessa skoðun?“

Síðan hlustum við, spyrjum áfram og rökræðum. Þannig getum við staðið vörð um mannréttindi og virðingu án þess að niðurlægja aðra.

Menningin byrjar hjá okkur

Við erum öll fyrirmyndir. Börnin okkar fylgjast með því hvernig við tölum um aðra, bregðumst við ágreiningi og hvort við gleðjumst yfir árangri annarra. Við breytum samfélaginu með daglegri framkomu okkar. Með því að stöðva niðrandi tal, leita staðreynda, hrósa, hvetja og rétta fram hjálparhönd.

Við þurfum ekki að vera sammála um allt til að sýna hvert öðru virðingu.

Friðurinn er grunnurinn að hamingju. En hann verður ekki til af sjálfu sér. Við þurfum að rækta hann, verja hann og sýna hann í verki.

Stoppum við. Spyrjum. Hlustum. Rökræðum.

Sköpum menningu þar sem við gleðjast með öðrum, þökkum og hrósum. Þegar við hjálpum hvert öðru að blómstra styrkjum við líka menningu og viðhorf allra í „þorpinu“. 

Höfundur er viðskiptafræðingur með MS í stjórnun og stefnumótun, formaður Öldungaráðs Viðreisnar og Qigong kennari – lífsraekt.is.