Eyjan

Pawel Bartoszek: Tvíhliða samningur við ESB í stað EES myndi ganga nærri stjórnarskránni

Mynd
Pawel Bartoszek
Pawel Bartoszek

Það er engan veginn öruggt að EES-samningurinn verði um aldir og ævi. Nokkuð ljóst er að ef Norðmenn telja hagsmunum sínum gagnvart ESB betur borgið öðruvísi en með EES samningnum geta Ísland og Liechtenstein engan veginn borið þær stofnanir sem EES-samstarfið kallar á. Þá er líklegasta lausnin tvíhliðasamningur þar sem Evrópusambandið hefði eftirlit með framkvæmd og Evrópudómstóllinn myndi leysa úr ágreiningsefnum en ekki sjálfstæðar stofnanir og sérstakur dómstóll eins og í EES. Hin kosturinn er að ganga í ESB. Pawel Bartoszek, þingflokksformaður Viðreisnar, er gestur Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Eyjunnar.

„Það getur líka gerst að það verði önnur sviðsmynd, að Norðmenn ákveða að EES-samstarfið þjóni ekki lengur best þeirra hagsmunum og ákveði bara að gera einhvers konar tvíhliða samning við Evrópusambandið og það er hárrétt, , Ísland og Liechtenstein geta ekki borið þær alþjóðastofnanir sem EES-samstarfið kallar á. Hvað myndi þá gerast? Það eru í rauninni nokkrar leiðir. Ég myndi alltaf tala fyrir að mögulega þá skoða aftur aðild Evrópusambandsins.

Önnur sem er ekkert síður kannski líkleg ef við förum nú aðeins að velta fyrir okkur er að San Marínó og Andorra hafa nýlega gert tvíhliða samninga við Evrópusambandið sem Evrópusambandalagið kallar EES+ og er svona kannski plús fyrir Evrópusambandið að einhverju leyti en það er í rauninni mjög svipað kerfi og EES nema ekki með tveggja stoða kerfinu. Það er að segja, í samningum sem Andorra og San Marínó gera við ESB þá taka þeir líka upp reglur innri markaðarins gegnum sameiginlega eina nefnd fyrir hvert ríki en síðan er það framkvæmdastjórn Evrópusambandsins sem hefur eftirfylgni með innleiðingu, ekki einhver óháð stofnun eins og Eftirlitsstofnun EFTA. Og síðan er það ESB-dómstóllinn sem úrskurðar um, um deilur, ekki einhver sérstakur dómstóll.

Og mér segir svo hugur að ef, og við skulum ekki vonast eftir að verði, nú eru það okkar þjóðarhagsmunir að halda EES-samstarfinu gangandi. En segjum að vegna einhverra ákvarðana annars staðar myndi það samstarf líða undir lok þá yrði líklegast eitthvað svona sem okkur stæði til boða, að við gætum tekið þátt í innri markaðnum en Evrópusambandið myndi hafa eftirlit með framkvæmdinni og Evrópudómstóllinn myndi kveða á um úrlausn ágreiningsefna. Það er alla vega samningsaðstaða Evrópusambandsins við gerð slíks tvíhliða samnings, þori ég að fullyrða. Þannig að það er að mínu mati ekkert endilega okkar, þannig að þegar fólk talar um að skoða tvíhliða samstarf þá þetta er þá hérna valkosturinn og hann er ekki endilega betri fyrir okkur.“

Nei, nei og ég sé bara í hendi mér að þarna myndu vakna spurningar um stjórnarskrána.

„Já, algjörlega, þær myndu gera það og örugglega mörgum þeim rökum sem þar er til haga haldið áfram. En ég auðvitað verð að segja sko að við höfum að mínu mati hérna farið dálítið að ystu nöf auðvitað með EES-samningnum. Ég skil alveg hvernig að við svona að nafninu til höldum löggjafarvaldinu innanlands með því að samþykkja lög sem Evrópuþingið hefur samþykkt.

En hins vegar er það samt þannig að við erum, má segja, þjóðréttarlega skuldbundin til þess að taka upp reglur á mjög stórum málaflokkum og ef við gerum það ekki þá er refsingin eða þá er úrræðið í EES-samningnum að viðkomandi vörur bara missi þá síðan aðgang að Evrópumarkaðnum. Þannig að við auðvitað fáum ekki dóm á okkur en segjum við myndum ákveða að hætta að fylgja evrópskum reglum varðandi iðnað.

Þá bara fáum við ekki lengur aðgang fyrir okkar iðnaðarvörur. Það má segja: Jú, jú, þetta er auðvitað ekkert fullveldisframsal beint en áhrifin eru að mínu mati nokkurn veginn þau sömu. Við erum allavega efnahagslega svo skuldbundin til þess að taka upp viðkomandi reglur að það má hérna allavegana de facto kalla þetta fullveldisframsal.“

Já og það þarf náttúrlega ekki og við erum farnir á tíma en það væri spennandi, ég kannski fæ að gera það seinna að ræða um það hvað gerist hér ef EES-samningurinn flosnar upp og það tekst ekki að ganga frá einhverjum hagstæðum samningi til að taka við.

„Ja, við skulum nú kannski ekkert fara fram úr okkur í bölsýni. Þrátt fyrir allt þá sýnist mér nokkuð breið samstaða um EES-samstarfið á þingi núna og það þyrfti hérna mikil mistök og mikla röð af ólukku til þess að við myndum fyrir okkar eigin tilstilli detta þarna út.“

Ég hef ekki kannski mestar áhyggjur af því að við yrðum til þess þó það virðist vera fullur vilji til þess að setja EES-samninginn í uppnám hjá stjórnarandstöðunni, ég er ekki að segja að það að við innleiðum ekki bókun 35 sprengi EES-samninginn, En það styrkir hann ekki.

„Það gerir það ekki. En við horfum sem sagt á það núna að það eru auðvitað ákveðin tækifæri í því að það virðist vera að verða til svona hópur af ríkja sem stendur fyrir utan Evrópusambandið en tekur mjög þéttan þátt í samstarfinu. Ég nefni hérna San Marínó, Andorra, Sviss er líklegast að fara að gera annan tvíhliða samning sem svona í rauninni gengur út á svipað. Kanada, við höfum verið að tala um það. Svo erum við með Ísland, Noreg og Liechtenstein þannig að má segja að það verði kannski svona aðeins stærri hópur á jaðri hins sameiginlega markaðar og það er þá kannski tækifæri að byggja upp þau bandalög betur.“

Jú jú, nú og við vitum að vindáttin hefur snúist í Bretlandi.

„Já, það verður auðvitað spennandi að sjá hvert það leiðir. Auðvitað er ég Evrópusinni og myndi vilja sjá þessa hugmynd og þessi verkefni vaxa frekar en aftur þá er það ákvörðun annarra þjóða og við getum ekki látið okkar okkar hamingju hvíla á henni.“

Hægt er að hlusta á hlaðvarpið í heild sinni hér:

 

 

Einnig er hægt að hlusta á Spotify.