Eyjan

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Minnkum gjána

Mynd
Mynd

Það er auðvelt að segjast standa með landsbyggðinni. Erfiðara er að sýna það í verki.

Umræðan um Loftbrúnna síðustu daga hefur verið beitt og ég tek alvarlega þá gagnrýni að fólk upplifi ekki að ríkisstjórnin sé að hlusta. Það er jú skylda okkar sem sitjum á þingi að hlusta þegar slíkur tónn heyrist og taka hann alvarlega. Ekki afgreiða gagnrýni sem flokkspólitíska. En það er líka að mínu mati sanngjarnt að horfa á heildarmyndina og meta verk okkar af sanngirni.

Hvað varðar loftbrúnna þá hef ég verið skýr í afstöðu minni. Sjö þúsund króna niðurgreiðsla á fluglegg dugar ekki. Það þarf því að endurskoða áformin. Með stærra samhengi í huga. Loftbrúin á að jafna aðstöðumun en ekki að vera úrræði sem lítur betur út á pappír en í raunveruleikanum.

Jafnræði má ekki ráðast af búsetu

Þegar fólk á landsbyggðinni ferðast til Reykjavíkur vegna læknisheimsókna, sérfræðimeðferðar eða annarrar nauðsynlegrar þjónustu er það ekki að fara í frí. Það er að sækja þjónustu sem stendur því ekki til boða heima fyrir. Þá verður ferðakostnaðurinn hluti af kostnaðinum við að búa þar sem maður vill búa. Við þurfum að skoða Loftbrúna, endurgreiðslur vegna heilbrigðisþjónustu og önnur kerfi sem eiga að tryggja jafnræði. Búseta á ekki að vera þröskuldur fyrir nauðsynlegri þjónustu.

Ég hef heyrt því fleygt fram í umræðunni síðustu daga að ríkisstjórnin sé að refsa landsbyggðinni vegna afstöðu hennar til þjóðaratkvæðagreiðslunnar í sumar. Það eru fráleitar ásakanir sem eiga ekki við nein rök að styðjast. En það breytir engu um skyldu okkar til að hlusta á gagnrýni, leiðrétta það sem þarf að leiðrétta og sýna í verki að við stöndum með fólki um allt land. Það má gagnrýna ákvarðanir án þess að eigna fólki illan ásetning. Og það má krefjast úrbóta án þess að afskrifa allt sem vel er gert.

Að standa með landsbyggðinni snýst ekki bara um að niðurgreiða ferðir til Reykjavíkur. Það snýst líka um að gera fólki kleift að lifa góðu lífi heima hjá sér og fækka þeim hindrunum sem standa í vegi fyrir framþróun. Tryggja tækifæri og þjónustu í heimabyggð. 

Innviðir eru meira en kosningaloforð

Þar skiptir innviðauppbygging höfuðmáli. Ríkisstjórnin hefur lokið vinnu við samgönguáætlun og unnið að nýju fyrirkomulagi fjármögnunar innviða og stofnun innviðafélags. Við vinnum að jöfnun flutningskostnaðar raforku, undirbúningi jarðgangakosta á Vestfjörðum, meðal annars Súðavíkur- og Mikladals- og Hálfdánarganga, uppbyggingu hafna og öflugri fjarskiptum. Þá er unnið að uppbyggingu verkmenntunar, áframhaldandi jarðhitaleit og lausnum sem geta hraðað framkvæmdum og verðmætasköpun. Við þurfum líka að efla löggæslu og áfallaþol samfélagsins.

Þetta eru ekki bara verkefni á blaði. Þetta eru forsendur atvinnulífs, lífsgæða og framtíðarmöguleika fólks um allt land. En ég veit líka að fólk vill sjá framkvæmdir, ekki bara áætlanir. Þess vegna þarf að fylgja þessum málum eftir af festu og hraða. Áætlanir hafa ekkert gildi nema þær skili sér í raunverulegum umbótum.

Við þurfum að taka ábyrgð á ríkisfjármálunum og hætta að velta sífellt reikningnum yfir á næstu kynslóð. Hætta að reka ríkið á yfirdrætti. En slík markmið mega ekki verða afsökun fyrir því að horfa fram hjá aðstöðumun eftir búsetu. Það er hægt að reka ríkissjóð af ábyrgð og standa með landsbyggðinni á sama tíma. Ef útfærsla kerfis er röng ber okkur að leiðrétta hana.

Ég er þingmaður Norðvesturkjördæmis vegna þess að ég trúi á framtíð þess. Það er mitt heima. Ég ætla ekki að láta mér nægja að telja upp það sem hefur áunnist, heldur halda áfram að berjast fyrir því sem vantar. Og ég ætla að standa mig betur í að upplýsa fólk um þá vinnu sem fer fram, því ég trúi því að árangur sem fólk sér muni skila sér í trausti.

Dæmum verkin, ekki slagorðin

Mér er alveg sama hvar flokkslínurnar liggja þegar framtíð landsbyggðarinnar er annars vegar. Við eigum að geta sameinast um að byggja upp sterkara atvinnulíf, betri samgöngur og raunverulegt jafnræði í þjónustu.

Það er nauðsynlegt verkefni að minnka gjánna milli landsbyggðar og höfuðborgarsvæðis. Auka skilninginn á ólíkum búsetuskilyrðum fólks. Og hugsa um það hvernig við sem samfélag getum tryggt jafnræði á milli ólíkra svæða. Þessi gjá er eitt besta dæmið um „við og þið” hugsunina. En þegar öllu er á botninn hvolft þá erum við öll íbúar í sama samfélagi. Með sömu skattbyrði og deilum sömu gæðum.

Landsbyggðin þarf ekki ölmusu. Hún þarf sanngjörn skilyrði, öfluga innviði og stjórnvöld sem standa við stóru orðin.

Það er það sem við ætlum að gera. Það er af þeim verkum sem við verðum dæmd.