Í EES innleiðum við reglur sem samþykktar eru og settar úti í Evrópu án íslenskrar aðkomu en værum við í ESB tækju íslenskir þingmenn þátt í að setja Evrópureglurnar. Þetta er hin einfalda staðreynd. Hvað bókun 35 varðar þá er hún til að tryggja að fólk njóti sömu réttinda alls staðar á Evrópska efnahagssvæðinu. Þetta er er hornsteinn þess að hinn samevrópski vinnumarkaður gangi upp. Pawel Bartoszek, þingflokksformaður Viðreisnar, er gestur Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Eyjunnar.
Hægt er að hlusta á brot úr þættinum hér:
Fólk hefur orðið fyrir tjóni vegna þess að við höfum ekki innleitt bókun 35 með réttum hætti. Og það hefur verið orðið fyrir tjóni sem íslenska ríkið hefur verið gert síðan ábyrgt eða bótaskylt fyrir.
„Já, það hafa komið upp mál eins og fæðingarorlofsmálið þar sem fólk sem bjó erlendis naut þá ekki að fullu réttar til fæðingarorlofs sem það hefði átt að gera út þessum hugmyndum um frjálsan flutning fólks milli landa. Ef hinn samevrópski vinnumarkaður á að ganga upp þá auðvitað viljum við ekki að fólk missi öll réttindi við að flytja á milli landa.
Niðurstaðan í dag, ef þetta er svona þá þurfum við bara að borga út bætur í hvert skipti og breyta síðan lögunum. Við myndum hvort sem er þurfa að breyta lögum líklegast ef bókun 35 yrði lögfest, þú vilt ekki hafa í lagasafninu tvo hluti sem klárlega stangast á. En réttur þess sem sækir væri, væri sterkari. En svo aftur, ég ítreka, þetta eru ekki mörg mál á hverju ári sem koma upp þannig að þegar menn segja að þetta sé einhver gríðarleg sko breyting á íslensku réttarfari þá reynir þetta aðeins á það þegar að í rauninni löggjafinn hefur, ja, klúðrað einhverju og ekki innleitt EES-rétt með réttum hætti.“
Má ekki, má ekki í sjálfu sér sko einfalda málið og segja: Já, við getum lögleitt rétta innleiðingu á bókun 35. Og þá gerum við það í eitt skipti fyrir öll og þá leikur enginn vafi á því að evrópskar reglur sem að við erum búin að innleiða hér eru rétthærri en íslensk lög hvort sem þau eru eldri eða nýrri, annars þurfum við í raun og veru að fara og breyta alltaf íslenskum lögum. Ef við viljum uppfylla EES-samninginn þá þurfum við að leggja bara í rannsóknarvinnuna og fara í að breyta hverjum lögunum á fætur öðrum.
„Algjörlega en, og það væri auðvitað ákveðin lausn fólgin í því sko að öðru leyti en samt er vandinn sá að við höfum í EES-samningnum lofað að við innleiðum forgangsreglu ef þörf krefur. Þess var ekki talin þörf en nú er sú þörf komin. Þetta er svona mál og ég get alveg talað aðeins um það, sko, menn tala auðvitað vel um EES-samninginn og auðvitað er ég mikill stuðningsmaður þess, ef við erum ekki í Evrópusambandinu, að við tökum þátt í EES-samstarfinu með þessum hætti.
En auðvitað er öll þessi uppbygging sem hefur verið sett upp til þess að við einhvern veginn lítum fram hjá þessu óbeina fullveldisframsali sem felst í því að þingmenn á Evrópuþinginu samþykkja einhver lög um persónuvernd og svo eru þau orðin að lögum á Íslandi óbreytt nokkrum mánuðum eða árum síðar. Öll þessi uppsetning í gegnum samráð við nefnd og þingsályktunartillögum um afléttingu stjórnskipulagsfyrirvara og síðan lagasetningu. Nógu er nú ESB-lagasetningarferlið flókið fyrir og við bætum heilu lagi af flækjum ofan á það.
Hvað mig varðar yrði í rauninni bara miklu einfaldara að hafa þetta ef að við værum í Evrópusambandinu þá bara eru samþykkt einhver lög á einhverju þingi þar sem við eigum fulltrúa og þau taka þá bara gildi og hafa þá í rauninni forgang og auðvitað þyrfti stjórnarskrárbreytingu til þess mjög líklega. En ég er bara að segja að það var auðvitað talað um þetta og þjóðin kvað upp sinn úrskurð hvað það varðar en hvað mig varðar þá er kerfið sem við erum með í dag alls ekki einfaldara, gagnsærra, lýðræðislegra eða tryggja okkur meira fullveldi heldur en það sem við værum með fullri aðild að ESB.“
Já, ég verð nú að taka undir það með þér. Ég hef sjálfur sannfæringu fyrir því að þessi Evrópumál eru hvergi nærri búin, Evrópuumræða á Íslandi og aðild, umræða um aðild, þetta er ekki mál sem að þjóðaratkvæðagreiðslan í ágúst sópaði bara undir teppið til næstu áratuga vegna þess að við sjáum bara að það er eitt og annað á döfinni í heiminum. Það er mikil óvissa í alþjóðamálum. Við vitum það líka að það eru Norðmenn sem að bera uppi EES-samninginn. Ég meina, við leggjum okkar fram en þeir eru náttúrulega hryggjarstykkið.
„Þeir borga vel yfir 90% af öllum kostnaðinum við EES-samning.“
Það er alveg klárt mál. Nú hafa menn áhyggjur af því að Rússland muni aðeins láta reyna á samstöðugetu NATO. Aðeins að banka í kannski Eystrasaltsríkjunum. Kannski í Póllandi, maður veit það ekki. Líklega er mér sagt í Eystrasaltsríkjunum. Margir hafa sagt við mig að Norðmenn sem eru með landamæri að Rússlandi, það sé þá mjög líklegt að það myndi leiða til þess að þeir verði komnir í aðildarviðræður fyrr en varir. Það myndi gjörbreyta okkar stöðu.
„Það væri gaman fyrir Evrópusinna að hafa þá sýn. Ég myndi halda að það væri kannski samt að einhverju leyti óskhyggja. Okkar hreyfing í átt að ESB hefði mögulega getað hreyft við Norðmönnum en höfum samt í huga að Svíar fóru inn í ESB og Norðmenn sátu eftir. Það eru lönd sem virkilega starfa þétt saman og voru með mjög auðvitað þétt efnahagsleg samstarf sín á milli. Þannig að við eigum reyndar bara að taka okkar eigin ákvörðun á því hvað Norðmenn gera. Hins vegar auðvitað getur alveg gerst að það verði einhverjar breytingar.“
Hægt er að hlusta á hlaðvarpið í heild sinni hér:
Einnig er hægt að hlusta á Spotify.