Eyjan

Orðið á götunni: Ógnarstjórn Hildar í Reykjavík

Mynd

Orðið á götunni er að gamanið sé tekið að kárna hjá meirihlutanum í Reykjavíkurborg. Ferillinn hingað til, sem raunar er ekki ýkja langur, er varðaður axarsköftum og pólitískum sjálfsmörkum.

Ráðist var í uppsagnir til að hagræða í borgarkerfinu. Um 90 manns var sagt upp en svo kom í ljós að, úps, þarna hafi ómissandi fólki verið sagt upp störfum og því þurfti að fá fólkið til baka. Um þriðjungur þeirra sem voru rekin eru nú aftur komin til starfa. Orðið á götunni er að stundum sé betur heima setið en að leggja í vanhugsað gönuhlaup.

Fjölmiðlafulltrúum, sem að sönnu má færa rök fyrir að hafi verið of margir, var sagt upp. Uppsagnirnar voru þó ekki meiri en svo að þeir voru færðir til innan kerfisins og verkefnum þeirra svo útvistað að hluta. Hermt er að sparnaðurinn af þessum dansi hafi verið minni en enginn.

Á dögunum voru kynnt áform um „hagræðingu“ varðandi bókasöfn borgarinnar. Orðið á götunni er að erfitt sé að túlka það öðruvísi en svo að meirihlutinn hafi reynt að telja sjálfum sér og öðrum trú um að það yrði til að bæta þjónustu við íbúa borgarinnar að fækka bókasöfnum og stytta opnunartíma.

Í fyrra nam tap af rekstri Fjölskyldu- og húsdýragarðsins tæpum hálfum milljarði. Kemur nú borgarstjóri fram og viðrar hugmyndir um að einkavæða reksturinn. Þekkir Hildur Björnsdóttir einhverja Sjálfstæðismenn sem hafa einkavætt opinbert tap? Orðið á götunni er að hún eigi að vita betur. Það vita allir að Sjálfstæðismenn einkavæða gróða en ekki tap. Hver skyldi vilja taka við þessum rekstri án myndarlegrar meðgjafar frá borginni? Veitingareksturinn í garðinum hefur verið í höndum einkaaðila í mörg ár og ekkert meira þar að sækja.

Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn er þjónusta borgarinnar við íbúa sína, sér í lagi barnafólk og aðstandendur barna; foreldra og ömmur og afa. Vill Hildur slökkva á þessari þjónustu til að spara?

Samhjálp var langt komin með að innrétta nýja kaffistofu fyrir skjólstæðinga sína á Grensásvegi með ærnum tilkostnaði þegar borgarstjórn kippti í spottann og kom í veg fyrir opnun vegna mótmæla íbúa í hverfinu. Hildur lofaði að finna nýja lausn snarlega. ekkert bólar á henni. Enn eitt klúðrið.

Orðið á götunni er að Hildur hafi lofað svo stórkostlega upp í ermi sína að nú sprikli hún og reyni að gera frjálshyggjuliðinu í flokknum til geðs. Miðflokksarmur Sjálfstæðisflokksins hamast einatt í henni að gera eitthvað, bara eitthvað, og hún virðist steyta á skeri mun fyrr en búist hafði verið við.

Hildur hefur alls ekki snert á stærstu kosningamálunum eins og umferðarmálunum, að ekki sé talað um Borgarlínuna. Ekkert heyrist frá henni um það mál en nú er liðið hálft ár frá kosningunum og tíminn líður hratt.

Í nóvember þarf meirihlutinn að sýna fjárhagsáætlun fyrir 2027 og orðið á götunni er að þá fyrst byrji ballið. Ekki verður séð að Hildur komi saman fjárhagsáætlun fyrir næsta ár án þess að hækka skatta, líklega fasteignaskatta, sem yrði mikið skipbrot fyrir hana í ljósi digurbarkalegra yfirlýsinga um þau mál og rekstur borgarinnar.

Svo er hún byrjuð að tala um fækkun borgarfulltrúa – rekin áfram af harðlínuöflum í sínum eigin flokki. Hildur talar um að fækka borgarfulltrúum úr 23 í 15 og spara 125 milljónir á ári, hálfan milljarð á heilu kjörtímabili. Það yrði þá fyrst á næsta kjörtímabili en þá verður væntanlega kominn nýr meirihluti í borgarstjórn.

Orðið á götunni er að vilji Hildur raunverulega spara strax varðandi borgarfulltrúa þá er hægt að hætta með að hafa 1. varaborgarfulltrúa allra flokka á 70% launum borgarfulltrúa, nær milljón á mánuði. Svo væri hægt að hætta að greiða borgarfulltrúum fyrir setu í nefndum innan borgarkerfisins og líta svo á að það falli undir daglegar skyldur sem fylgi starfinu. Þannig væri strax hægt að spara 125 milljónir á ári og ekki þyrfti að bíða fram á næsta kjörtímabil.

Orðið á götunni er að raunar sé galið að fækka borgarfulltrúum. Þeir eru í dag 23 í Reykjavík en 11 í nágrannasveitarfélögunum Kópavogi, Hafnarfirði og Garðabæ. Einnig á Akureyri eru bæjarfulltrúar 11. Í þessum sveitarfélögum búa á bilinu 22-44 þúsund íbúar á meðan 147 þúsund íbúar eru í Reykjavík. Stærðarmunurinn einn hlýtur að kalla á meira umfang í höfuðborginni en hinum sveitarfélögunum.

Ári 1982 lét Davíð Oddsson fækka borgarfulltrúum úr 23 í 15. Þá voru íbúar á Íslandi 230 þúsund, en eru nú 390 þúsund. Íbúar Reykjavíkur voru 86 þúsund 1982 en eru nú 147 þúsund. Þetta er fjölgun um 70%. Fækkunin hjá Davíð var pólitískt trix af hans hálfu. Hver þau rök sem hann beitti þá eiga ekki lengur við. Gamlir brandarar súrna fljótt og svo verður að hafa í huga að Hildur Björnsdóttir er einfaldlega alls enginn Davíð Oddsson.

Orðið á götunni er að borgarfulltrúar Viðreisnar og Framsóknar verði að vera varir um sig og gæta sín á því að láta Hildi ekki draga sig út í alla þessa vitleysu. Þeir verði að spyrna við fótum eða slíta meirihlutanum ella. Til þess gæti hæglega komið.