Orðið á götunni er að vert sé að staldra við og skoða vandlega þau áform sem nú eru uppi um rekstur Litla spítalans, sem boðað er að hefji senn starfsemi í fyrrum höfuðstöðvum Landsvirkjunar að Háaleitisbraut 68, að loknum gagngerum endurbótum, en Landsvirkjun þurfti að yfirgefa húsnæðið vegna alvarlegra mygluvandamála.
Í Heimildinni í gær er farið yfir helstu þætti málsins. Skráður eigandi Litla spítalans er félagið Helga Medical ehf., en eigandi þess mun vera Guðrún Ása Björnsdóttir, læknir. Guðrún Ása var aðstoðarmaður Willums Þórs Þórssonar, heilbrigðisráðherra árið 2022 en fór úr því starfi beint í að stýra Klíníkinni. Orðið á götunni er að það orki mjög tvímælis þegar fólk sem hefur verið í efstu lögum yfirstjórnar heilbrigðiskerfisins og býr yfir viðamiklum innherjaupplýsingum, fer beint til starfa fyrir hagsmunaaðila í greininni. Störfum Guðrúnar Ásu fyrir Klíníkina lauk í júli í fyrra án skýringa.
Eiginmaður Guðrúnar Ásu, Halldór Benjamín Þorbergsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins og núverandi forstjóri fasteignafélagsins Heima, er varamaður í stjórn Helga Medical ehf. eiganda Litla spítalans. Willum Þór Þórsson, fyrrverandi heilbrigðisráðherra og núverandi forseti ÍSÍ, mun hafa samþykkt að gegna stjórnarformennsku í stjórn þessa nýja einkarekna spítala.
Í Morgunblaðinu í gær kemur fram að kjölfestufjárfestir í Litla spítalanum sé Katrín Pétursdóttir, forstjóri Lýsis hf. til margra ára og einn eigenda Morgunblaðsins. Katrín seldi á síðasta ári Lýsi til Brims fyrir tugi milljarða og sér hyggst nú ávaxta fé sitt með því að fjárfesta í heilbrigðisþjónustu. Í Heimildinni er greint frá því að Katrín hafi komist í gegnum efnahagshrunið 2008 með hjálp Guðbjargar Matthíasdóttir, aðaleiganda Morgunblaðsins.
Orðið á götunni er að Litli spítalinn hyggist ekki starfa eins og aðrar einkareknar heilbrigðisstofnanir, sem bjóða upp á þjónustu og rukka notendur fyrir. Sérstaklega kemur fram hjá forsvarsmönnum Litla spítalans að hann ætli beinlínis að sinna verkefnum sem Landspítalinn þjónar í dag. Og Landspítalinn hefur bent á, líkt og heilbrigðisráðherra og Sjúkratryggingar Íslands, að þau verkefni sem Litli spítalinn hyggst hasla sé völl á eru alls ekki þau verkefni sem þrengja að Landspítalanum. Það er hreinlega engin þörf á Litla spítalanum!
Orðið á götunni er að viðskiptamódel Litla spítalans gangi út á að hefja starfsemi sem er óþörf og ætlast til þess að íslenska ríkið, skattgreiðendur, greiði fyrir starfsemina, sem er með öllu óþörf! Vissulega sé í lagi að einkaaðilar hefji heilbrigðistengda starfsemi að eigin frumkvæði en öðru máli gegnir þegar málið gengur einfaldlega út á að komast beint á ríkisspenann.
Seint verður annað sagt en að sægreifar þessa lands og ýmsir í tengdum greinum hafii stundað pilsfaldakapítalisma. Þegar vel gengur hirða þeir hagnaðinn en þegar gefur á bátinn ætlast þeir til að ríkið stígi inn og taki tapið. Oftast hefur það gengið eftir.
Orðið á götunni er að vart sé til dæmi um tærari pilsfaldakapítalisma en það þegar þeir sem grætt hafa milljarða tugi á gjafakvótakerfinu, beint eða óbeint, hasla sér völl í „einkarekstri” í heilbrigðisþjónustu og ætlast til þess að ríkið borgi allt frá a-ö.
Mogginn hampar þessu en auðvitað er Mogginn í eigu þeirra sem ætla þarna að maka krókinn á kostnað skattgreiðenda. En orðið á götunni er að ef hægt er að ná einhverjum viðbótarpeningum inn í heilbrigðiskerfið skipti meira máli að þeir peningar renni inn í Landspítalann en gróðaævintýri pilsfaldakapítalista.