Eyjan

Sigmundur Ernir skrifar: Það krefst úthalds að auðga samfélagið

Mynd
Mynd

Mannréttindabarátta hefur mestu varðað um bætta ásýnd samfélagsins á lýðveldistímanum hér á landi. Og sú langa og linnulausa viðureign við afturhaldsöflin – og þau önnur sem vilja halda aftur af raunverulegu jafnrétti og lífsgæðum almennings – hefur skilað áþreifanlegum umbótum fyrir land og þjóð, og skipt einsleitninni út fyrir fjölbreytileikann.

Fimmtíu ára afmæli Landssamtakanna Þroskahjálpar, sem fagnað er á þessum haustdögum, er mikilvæg áminning um þennan ávinning. En saga þeirra sýnir jafnframt og sannar að það krefst úthalds svo auðga megi samfélagið. Og ekki síður – og það er hvað mikilvægast nú um stundir – að  aldrei megi slaka á í viðureigninni við íhaldið, og skipta alúðinni út fyrir fálæti.

Breytingin á þessum tíma, frá því aldarfjórðungur lifði af síðustu öld, og til jafnlengdar á þeirri nýju, er alger í lífi þroskahamlaðs fólks og aðstandenda þess, og ekki síst foreldranna, sem hófu baráttuna fyrir svo margt löngu, og sjá nú börn sín, komin vel á fullorðinsárin, svara fyrir sig sjálf – og það fullum hálsi – og taka virkan þátt í samfélaginu.

Frumherjana bauð ekki í grun um miðbik síðustu aldar, þegar Styrktarfélög vangefinna voru stofnað á Akureyri og Reykjavík, hverjar áskoranirnar yrðu í viðleitni þeirra til að rétta hlut þessara lítilmagna á landinu, sem kallaðir voru jafn niðrandi nöfnum og stjórnvöld sjálf kusu að klína á málaflokkinn, en þau ráku Fávitastofnun ríkisins allt til 1978, þegar nafngift af því tagi þótti ekki lengur hæfa. 

Í fyrstu var ekkert vitað um umfang þessa mannúðarstarfs sem beið foreldranna í framvarðarsveit styrktarfélaganna, enda var allsendis óvíst hversu margir landsmenn bjuggu þá við þroskaskerðingu af einhverju tagi, hvort heldur sem það voru börn og fullorðnir. Megin ástæða þessa var að fjöldi þessa fólks var falinn inni á heimilum af óttanum einum saman við að nágrannar fengju pata af fávitanum á heimilinu, sem svo var nefndur, en stundum miklu verri heitum. Þess eru raunar dæmi úr sögu fatlaðs fólks á Íslandi að sá vitskerti hafi verið sendur út í fjós ef gesti bar að garði, og jafnvel bundinn þar við staur svo hann færi nú ekki að skjóta upp kollinum í stássstofunni.

„Og þess þá heldur að fálætið verði ekki í boði, því undir hrundum múrunum geltir gamla hægrið enn sem fyrr, og geldur varhug við því hvað málaflokkurinn er þungur baggi á bænum.“

En smám saman var hægt að kasta tölu á mannskapinn sem varð til þess að ríkisvaldið tók við sér og bauð upp á hælisvist, sem átti, lengi vel, að vera á einum og sama staðnum, á Kópavogshæli, þangað sem liðinu var smalað alls staðar að af landinu, hvort sem foreldrum eða systkinum líkaði betur eða verr, og bókstaflega hrúgað inn á einu og sömu sólarhringsstofnunina þar sem börn og gamalmenni áttu að njóta skjóls undir einu og sama þakinu, við þröngan kost.

Það var afstúkun sem aðstandendurnir afbáru ekki, og raunar sá landlægi hugsunarháttur, lengi vel, að þroskahamlað fólk væri best geymt fjarri mannabyggðum svo það þvældist ekki fyrir restinni af landsmönnum, og þeir betur settu þyrftu ekki að berja þá augum.

Rökrétt andlag af reiði ástvinanna var stofnun sambýla inni í íbúðarhverfum, en það fyrsta kom til sögunnar undir lok áttunda áratugarins í brekkurótunum á Akureyri. Og hvað kom á daginn? Fólkið var ekki fyrir! Það samlagaðist nágrönnum sínum svo undrafljótt að talsmenn hælislausnanna urðu flestir hverjir kjaftstopp.

Hér var kominn upptakturinn að því að sem verða vildi. Mannréttindaaldan sem reið yfir landið á sjöunda og einkum áttunda áratug síðustu aldar, og spratt úr frjóum jarðvegi rauðsokkanna og róttæklinganna sem oftast voru kallaðir hippar um þetta leyti Íslandssögunnar, hristi rækilega upp í karllægu og stöðnuðu þjóðlífi sem var farið að birtast fólki í svarthvítu Ríkissjónvarpinu þar sem svipþungur alvarleikinn sveif yfir vötnum.

Krafan um nám og menntun tók fljótlega fram úr þeim fordómum að fatlað fólk gæti ekki lært, og það skildi dæmt af veikleikum sínum einum saman. Að sama skapi hófst atvinnuþátttaka þess af fullum krafti og virkni á öllum sviðum samfélagsins, hvort heldur í félagslífi, menningu og íþróttum, og nú síðast í fjölmiðlum.

Mestu varðar að það er ekki lengur talað fyrir þroskahamlað fólk, eins og löngum áður, heldur talar það fyrir sig sjálft, enda hefur það sest í framsætið með foreldra sína á aftari bekknum.

Þvílík er breytingin á hálfri öld.

Og þess þá heldur að fálætið verði ekki í boði, því undir hrundum múrunum geltir gamla hægrið enn sem fyrr, og geldur varhug við því hvað málaflokkurinn er þungur baggi á bænum.