Alþingi er óvenjulegur vinnustaður þar sem starfið gengur í raun út á átök. Átök í þingsal standa hins vegar ekki í vegi fyrir góðu sambandi pólitískra andstæðinga, jafnvel vinasambandi. Það er enginn fótur fyrir því að stirt samband sé milli ráðherra Viðreisnar eða milli ráðherranna og þingflokksins. Pawel Bartoszek, formaður þingflokks Viðreisnar, er gestur Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Eyjunnar.
Hægt er að hlusta á brot úr þættinum hér:
„Ég hef, af því við ræðum ráðherra flokksins, ég á bara í mjög góðum samskiptum við ráðherra í Viðreisn og þetta er auðvitað í mörgum tilfellum hvort sem við erum að ræða Þorgerði eða Þorbjörgu Sigríði eða Hönnu Katrínu, þetta eru orðnar núna áratuga gamlar vináttur og áratuga gamalt faglegt samstarf sem ég hef átt við þessar ágætu konur. Ég upplifi ekki annað en að samskipti okkar séu bara góð og það hefur náttúrlega verið svona mitt hlutverk finnst mér núna sem þingflokksformaður að við bara setjum augun á boltann, höldum áfram, skipuleggjum okkar starf og förum að vinna að því sem máli skiptir, sem er að koma málum þessarar ríkisstjórnar í gegn.
Stjórnmál ganga út á það. Þau ganga ekkert út á einhverja sápuóperu eða einhvern dramakaos. Auðvitað erum við í vinnu sem er dálítið óhefðbundin. Það er meira um, um átök. Á venjulegum vinnustað, ef fólk er mikið að deila þá er það til merkis um að það sé mögulega eitthvað að. Á okkar vinnustað er það bara partur af vinnunni.“
Það er bara eðli vinnunnar.
„Eðli vinnunnar og þess vegna er kannski mun svona hefðbundin leið eins og stundum er það vinnustaður að reyna að þjappa sér saman, það fara allir og spila einhverja leiki saman. Það væri eiginlega til einskis að láta þingmenn gera það. Það er ekkert markmið að ég og Miðflokkur verðum sammála um allt. Þjóðin hefur kosið bara ólíkar raddir inn á þing til þess að fólk sé þar ósammála og það auðvitað gerir það að verkum að stundum verða samskiptin dálítið öðruvísi heldur en á öðrum vinnustöðum. En ég myndi samt segja að ég hef verið á mörgum vinnustöðum og þetta er ekki sá vinnustaður þar sem mér líður verst á og alls ekki. Þannig að maður bara þarf að venjast kannski þessum séreinkennum hans.“
Ég vann nú á Alþingi um, hvað, tveggja ára skeið fyrir, fyrir alllöngu. Ég man nú eftir því að menn tókust á og rifust eins og hundar og kettir úr ræðustól Alþingis og fengu sér svo rúllutertu saman og sem mestu mátar á kaffistofunni.
„Já, já. Ég myndi segja það, það kom mér, ég man nú og það er kannski ágætt að rifja upp og líka svolítið út af því hver átti í hlut, að fyrsti pólitíski þáttur sem ég mæti í, ég er bara rétt orðinn tvítugur, ekki mikið eldri en það, mæti í Silfur Egils sem var þá á Skjá einum, mjög svona improvised þáttur og hann var bara jafn lengi og Egill vildi í hvert skipti. Það var enginn kannski mjög fastur útsendingartími og þar mætti ég með, blessuð sé minning hans, Pétri H. Blöndal og Karli Th. Birgissyni sem féll frá nýlega, og það kom mér svo ótrúlega mikið á óvart að við vorum þarna, ég man nú ekki hvað við vorum að ræða, en það var bara kveikt á kamerunum og þeir tveir náttúrlega rifust eins og hundar og kettir og það var mjög skrúfað upp og svo þegar þessu var lokið þá var slökkt á kamerunni og þeir voru: „Já, heyrðu, ég er að fara niður á þing, vantar þig far? Já, ókei.“ Mér fannst þetta svo skrýtið af því ég var, þegar maður er ungur og svo ástríðufullur í stjórnmálum þá finnst manni eins og ástríða hljóti að fylgja þér fram yfir í rauninni bara fram yfir svona útsendingu en auðvitað voru þeir ástríðufullir fyrir máli sínu en þeir voru samt fagmenn að því leyti að þeir gátu aðskilið þetta við það að geta síðan bara talað saman í kjölfarið og þetta hef ég auðvitað lært en mér fannst kannski ágætt að rifja upp þessa sögu í sjónvarpinu þegar ég sá hverjir áttu í hlut.“
Já, já, þú átt ekki samleið með Miðflokknum en þú getur alveg setið við hliðina á Miðflokksmanni á kaffistofunni.
Ég og Sigmundur Davíð eigum bara, mér líkar bara vel við Sigmund Davíð. Við erum saman í alþjóðastarfi þingmanna, ÖSE-þing, sem sagt þing Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu. Við höfum ferðast þá svona kannski tvisvar á þessu ári í tengslum við það og okkar samskipti eru bara sko hin prýðilegustu þó ég viti að við verðum seint sammála um bókun 35 eða Evrópusambandið.“
Hægt er að hlusta á hlaðvarpið í heild sinni hér:
Einnig er hægt að hlusta á Spotify.