Eyjan

Orðið á götunni: Sjálfstæðisflokkurinn tapar miklu samkvæmt nýrri könnun – stjórnarflokkarnir halda velli

Mynd

Samkvæmt nýrri og stórri könnun Maskínu tapar Sjálfstæðisflokkurinn verulegu fylgi frá síðustu könnun og er kominn niður í 21,9% en var með 25% fyrir einum mánuði. Hér er um að ræða tapað fylgi sem nemur 12% af heild á aðeins einum mánuði. Þetta er góð vísbending um að málflutningur flokksins og stuðningsfjölmiðla hans eigi ekki hljómgrunn meðal kjósenda. Haldið er uppi skefjalausum áróðri gegn ríkisstjórninni og einstöku ráðherrum og þingmönnum. Allt er rakkað niður, allt er ómögulegt og látið er í veðri vaka að hér sé allt í kaldakoli – þrátt fyrir að helstu atvinnuvegir þjóðarinnar gangi ljómandi vel og séu arðsamir.

Orðið á götunni er að staða Samfylkingarinnar sé glæsileg og mælist flokkurinn með 28,6% fylgi sem er aukning frá síðasta mánuði um rúmt prósentustig. Samkvæmt þessu fengi flokkurinn trúlega 20 þingmenn kjörna. Viðreisn og Flokkur fólksins eru með nær óbreytt fylgi milli mánaða samkvæmt þessari könnun. Þessi niðurstaða er athyglisverð í ljósi þess mikla áróðurs sem dunið hefur á ríkisstjórninni að undanförnu og svo virðist sem þjóðaratkvæðagreiðslan í lok ágúst sem tapaðist hafi engin áhrif. Kjósendur virðast ekki blanda henni saman við stöðu stjórnmálaflokkanna.

Fylgi ríkisstjórnarflokkanna samkvæmt könnun Maskínu er samtals 45%, fylgi stjórnarandstöðuflokkanna er 43% en fylgi vinstri flokkanna sem kæmu ekki mönnum á þing er 12%. Ríkisstjórnarflokkarnir eru þannig með meirihlutafylgi á Alþingi samkvæmt þessari könnun.

Orðið á götunni er að þessi niðurstaða hljóti eð vera högg fyrir Sjálfstæðisflokkinn sem hefur talað digurbarkalega að undanförnu og haldið að hann væri kominn á skrið eftir úrslit þjóðaratkvæðagreiðslunnar í ágúst og í kjölfar hagstæðra úrslita í sveitarstjórnarkosningum á ýmsum stöðum. Það virðist fenna fljótt yfir þau úrslit, einkum á sér í lagi þegar upplýsingar eru nú teknar að birtast um hræðilega stöðu sveitarfélaganna, ekki síst þar sem flokkurinn hefur verið við völd og látið til sín taka. Seltjarnarnes sem flokkurinn hefur átt alla tíð er á leið í gjörgæslu og ekki er ástandið burðugt í Hafnarfirði eftir valdatíð Rósu Guðbjartsdóttur sem réði þar mestu á síðasta kjörtímabili og skilur við bæinn í fjármálakrísu.

Andstæðingar Guðrúnar Hafsteinsdóttur í flokknum munu nú vafalaust kenna henni um þessa afleitu þróun. Líkur aukast nú enn frekar á að hún fái mótframboð á komandi ári þegar landsfundur flokksins fer fram. Stuðningur við hana persónulega í nýlegri Gallupkönnun kom ekki vel út. Nú er bara spurning um það hverjum verður teflt fram gegn Guðrúnu á landsfundi 2027.

Margir sjálfstæðismenn hafa talað þannig að þeirra tími væri kominn að nýju en svo er ekki. Kjörtímabilið er senn hálfnað og ekkert bendir til annars en að ríkisstjórnin haldi velli og ljúki kjörtímabilinu í lok árs 2028 en þá verður kosið. Hvað gerist þá veit vitanlega enginn.

Orðið á götunni er að í kosningunum 2028 þurfi kjósendur að velja á milli þess að viðhalda ríkisstjórn miðju/hægri flokka eða samstjórn Sjálfstæðisflokks og Miðflokks. Vandséð er að kjósendur finni þá til löngunar að leiða núverandi þingmenn þessara flokka til valda. Hverjir gætu verið hæfir til að setjast í ríkisstjórn þeirra? Erfitt er að koma auga á þá einstaklinga við núverandi aðstæður.